08.05.1941
Neðri deild: 54. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í B-deild Alþingistíðinda. (578)

15. mál, hegningarlög

Atvmrh. (Ólafur Thors) :

Ég vil lýsa yfir því fyrir mitt leyti, að ég hafði ekkert hugboð um það, að til stæði handtaka á íslenzkum borgurum, sem átti sér stað fyrir skemmstu, og ég held, að hv. 7. landsk. hafi enga ástæðu til að bera það á ríkisstj., að hún hafi haft vitneskju um það fyrirfram.

Varðandi hitt atriðið, hvort ríkisstj. hefur gengið of skammt í því að láta Þjóðviljann sæta ábyrgð fyrir sín skrif, vil ég taka það fram, að ég áleit það saurblað svo langt fyrir neðan allt velsæmi, að ég áleit mig fyrir ofan það að taka það til greina.