16.06.1941
Sameinað þing: 28. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1271 í B-deild Alþingistíðinda. (58)

Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.

Forsrh. (Hermann Jónasson) :

Ég ætla ekki að svara þessu með öðru en því að vita slíkar umr. á Alþ. — En viðvíkjandi kærum þeim frá hv. þm., sem hann minntist á, vil ég geta þess, að ég hef ekki einu sinni heyrt þær nefndar fyrr en nú. Þær hljóta þá að hafa verið sendar stjórnarráðinu rétt í þessu, hafi þær verið til. (BrB: Þær voru sendar hæstv. dómsmrh. í febrúarmánuði:) Og hef ég aldrei heyrt getið um neitt ólag á Litla-Hrauni, fyrr en kvartanir um það koma frá kommúnistum, eftir að þeir voru sendir þangað.