20.02.1941
Neðri deild: 4. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 321 í B-deild Alþingistíðinda. (597)
6. mál, happadrætti
Garðar Þorsteinsson:
Í aths. í grg. þessa frv. er því haldið fram, að vegna aukinnar dýrtíðar hafi kostnaður við happdrætti háskólans hækkað allverulega, en happdrættið megi ekki við rýrnun tekna nú, ef standa eigi í skilum með samningsbundnar greiðslur afborgana og vaxta af lánum til háskólabyggingarinnar og ljúka verkinu við hana. Þess vegna er talin brýn nauðsyn að auka tekjur happdrættisins þannig, að það, sem kostaði 60, kosti 80 kr., og það, sem kostaði 6, kosti 8 kr.
Mig langar til að vita, hvort hæstv. fjmrh. hefur fengið skýrslu um. það frá happdrættinu, í hverju hinn gífurlega aukni kostnaður þess liggur.
Eins og menn muna, fékk háskólinn sérleyfi til að reka happdrætti um tiltekið árabil til að standast byggingarkostnað sinn. Án þess að sá tími væri útrunninn, svo að framhaldsþörf háskólans lægi ljóst fyrir, var á síðastl. þingi framlengdur leyfistíminn. Það var talið, að háskólinn þyrfti að halda þessum tekjum lengur en upphaflega var ætlazt til, sakir þess að hann hefði steypt sér í meiri kostnað en áætlað hafði verið. Nú virðist þetta alls ekki hafa verið nóg, heldur er reynt að færa sig. upp á skaftið. Þá er ekki grunlaust um, að fleira kunni undir að búa.
Ég hef fyrir framan mig reikninga happdrættisins. Þar sést, að langhæsti kostnaðarliður þess er laun umboðsmannanna. Þeir hafa 7% sölulaun af happdrættismiðunum, sem þeir selja. Ég veit ekki til, að sá hundraðshluti hafi hækkað. Þessi kostnaður getur þá engu breytt um afkomu happdrættisins, þótt dýrtíð vaxi. Auglýsingar, prentun og pappír hækka að vísu í verði. En ég get ekki fallizt á, að það muni happdrættið svo miklu, að það réttlæti bráðabirgðal. um slíkt efni. Ég fæ ekki séð, að sá kostnaður, sem nemur samkv. reikn. ekki yfir 6.4% af andvirði seldra miða á síðastl. ári, dragi svo mikið úr 200 þús. kr. ársgróða happdrættisins, að það sé knýjandi nauðsyn að grípa til bráðabirgðal. samkv. 23. gr. stjskr. sakir þess að sá aukakostnaður hafi eilítið vaxið.
Ástæðan er í mínum augum alls ekki þessi lítilfjörlegi kostnaðarauki við rekstur happdrættisins. Við vitum, að þrátt fyrir hinar miklu tekjur af happdrættinu undanfarin ár, skuldar háskólinn um 900 þús. kr. Að mínu áliti væri miklu skynsamlegra að gefa upp þessa ástæðu fyrir bráðabirgðal. En eins og mátt hefur sjá af blaðaskrifum um fjármál háskólans út af hófsamlegri „krítík“ á þeim í einu af dagblöðunum, má ekki á slíka hluti minnast, svo að ekki sé rokið upp. Sú viðkvæmni bendir til, að hollt væri, að ríkisvaldið hefði meiri íhlutun um þau efni háskólans. Hví eru ekki birtir opinberir reikningar um kostnað við háskólabygginguna? Mér er sagt, að reikningarnir liggi hjá húsameistara ríkisins. En þarna er sannarlega ekki um einkaeign nokkurra manna að ræða, og má ekki minna vera en gerð sé grein fyrir, til hvers peningarnir hafa farið. Þegar háskólinn skuldar 900 þús. kr. og bráðabirgðal. eru sett til að auka sérleyfistekjur hans, svo að hann geti staðið við umsamdar afborganir skulda, finnst mér meir en undarlegt, að hann skuli vera látinn kaupa 215 þús. kr. lóð til að reisa á stórhýsi til áhættusams atvinnurekstrar. Eiga hinar nýju auknu tekjur e. t. v. að standa undir þeim framkvæmdum og áhættu?
Hér er verið að leika sér með peninga úr vasa almennings. Mér er alveg sama, hvort það er frjáls skattur eða ekki, þetta er almannafé. Ef almenningur er nú fúsari en endranær að borga miðana dýrt, hefði það leitt til kaupa á fleiri miðum og aukins gróða happdrættisins, svo að því minni var þörfin á bráðabirgðal. Ég vildi fá að vita hjá hæstv. fjmrh., hvort fyrir hann hefur verið lögð skýrsla um það, hve mikil tekjurýrnun happdrættisins var, svo að nauðsyn v æri að taka í taumana. Ég held, að þeir 5 hæstv. ráðh., sem fara nú með konungsvald hér á landi, þyrftu að athuga það vel í sameiningu, er þeim þykir ástæða til að neyta þess valds samkv. 23. gr. stjskr. til að gefa út slík bráðabirgðalög.