20.02.1941
Neðri deild: 4. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 328 í B-deild Alþingistíðinda. (603)
6. mál, happadrætti
Fjmrh. (Jakob Möller) :
Mér virðist. hv. þm. vera farnir að tala um nokkuð annað mál en fyrir liggur, því að mér virðist það annað mál, hvort rétt hafi verið að ráðast í svo stórt fyrirtæki sem háskólabyggingin er. Nú hefur hæstv. Alþ. horft upp á það í nokkur ár, að stofnað var til háskólabyggingar í því formi, sem hún nú er i. Og ég verð að segja það, að það er nokkuð seint að hugsa sér að taka í taumana um það nú. Það hefði þá átt að gerast fyrr. Þessir hv. þm., sem um þetta ræða nú, hafa setið á þingi öll þessi ár. Og ég man ekki til, að þeir hafi á þingi mælt varnaðarorð um það, að þjóðin væri með þessu verki að reisa sér hurðarás um öxl. Ég ætla ekki að ræða um það, hvort svo er eða ekki. Má vera, að svo sé. En það er bara of seint að byrgja brunninn, þegar barnið er dottið ofan í. Og jafnvel þótt þeir hefðu séð. það fyrr, en þó ekki fyrr en búið var að koma húsinu undir þak, þá býst ég ekki við, að gripið hefði verið til þess ráðs að rífa það niður, sem einhverjum mönnum hefði þótt vera um of.
Það, sem gerzt hefur í þessu máli síðustu árin og segja má, að þetta frv. standi í sambandi við, er, að afráðið var — e. t. v. í samráði við ríkisstj., ég veit það ekki, en ég var því fullkomlega sammála — að ljúka við bygginguna áður en byggingarkostnaður hækkaði enn meira í verði. Og það er ég sannfærður um, að ef á annað borð átti að ljúka við háskólabygginguna, þá átti að keppast við að ljúka því verki sem fyrst, eftir að ófriðurinn hófst.
Mig furðar dálítið á því, að hv. 7. landsk. (GÞ), sem nefndi í þessu sambandi þjóðleikhúsið, skyldi ekki finna það, hvað það var áþreifanlegt dæmi um það, hvernig er hægt, með því að kippa að sér hendinni, að gera sér stórskaða. Ég hef aldrei mælt með því, heldur þvert á móti, að bygging þjóðleikhússins var stöðvuð. Það má segja, að það var hrein furða, hvernig því var stjórnað. Það var þó nokkur ágreiningur. Sumir vildu hafa það stærra. En ég vildi heldur hafa á því hemil, hve stór byggingin væri höfð, heldur en að hafa hana stærri. En í því máli var ekkert frekar aðhafzt, heldur þegar stöðvuð framkvæmd á byggingu þess húss. Og á því hefur þjóðfélagið svo tapað stórfé.
Ég vil minna hv. 7. landsk. á það, að samtímis því, sem nú hefur verið forðazt þetta viti hvað háskólann snertir, að stöðva bygginguna, þá hefur einnig verið hafizt handa um að koma þjóðleikhúsinu áfram eftir því sem tök eru á. Og nú á fjárl. er heimild til að greiða þann tekjustofn til þeirrar framkvæmdar, sem þeirri byggingu er ætlaður. E. t. v. er það þó um seinan, því að vera má, að við fáum ekki að sinni umráð yfir húsinu aftur.
Þetta frv., sem hér liggur fyrir, miðar aðeins að því að afla tekna fyrir háskólann til að standa straum af þeim skuldbindingum, sem forráðamenn háskólans hafa fyrir hans hönd tekizt á hendur vegna háskólabyggingarinnar, sem stofnað hefur verið til á undanförnum árum. Og það er ekki neinn vegur til þess að komast undan því að afla slíkra tekna. Háskólabyggingin er komin upp í þessu formi, og það verður að greiðast, sem til þess hefur þurft, hvað sem það kosfar. Á sínum tíma féllst þingið á að framlengja tímann fyrir happdrættið, svo sem nægði til þess að greiða þennan kostnað. En verðbreytingar í landinu hafa sýnilega þau áhrif, að framlengja verður tímabilið enn eða þá hækka verð á happdrættismiðum. Og ég tel rétt og í alla staði réttmætt að hækka verðið á miðunum, því það er orðið miklu lægra í hlutfalli við aðra hluti en það var, þegar happdrættið var stofnað.
Hv. 7. landsk. bendir á, að ætla mætti, að háskólinn hefði getað náð sama tekjuauka og hér er miðað að, með aukinni sölu happdrættismiða fyrir sama verð á hvern miða. Ég tel ákaflega varasamt að gera ráð fyrir því. Ég geri ráð fyrir, að hv. 7. landsk. byggi skoðun sína um þetta á því, að með aukinni peningaveltu fari það eins og um kaup og sölu á öðrum vörum, að meira verði keypt af miðunum. En mér er nær að halda, að það gæti orðið einmitt þveröfugt, að eftir því, sem almenningur getur veitt sér að kaupa meira, kaupi hann einmitt minna af happdrættismiðum. En hvað sem því líður, breytir það engu um það, að það er jafnréttmætt, miðað við það breytta verðlag, sem orðið er í landinu, að breytt sé verðinu á happdrættismiðunum. Og þar með er það ekki þannig, að aðeins verð miðanna hækki, heldur hækka vinningsmöguleikar viðskiptamanna happdrættisins að sama skapi sem verð miðanna hækkar. Þeir fá í raun og veru alveg fullt verð fyrir það, sem þeir láta af hendi, því að vinningafúlgan hækkar að sama skapi sem verð miðanna hækkar.
Út af því, sem hv. þm. N.-Þ. var að segja um þessa miklu hækkun á söluverði miðanna, sem hann taldi vera, vil ég benda á það, að það er hér ekki um að ræða meira en 33% hækkun, en hækkun á verðvísitölunni er orðin allt að 50%, svo að þessi hækkun er ekki eins mikil og þessi hv. þm. virðist álíta. Það er vitanlegt, að þær auknu tekjur, sem happdrættið fær með þessu móti, skiptast milli vinninganna og kostnaðarins við happdrættið, og ágóðinn ætti að aukast með þessu, en það takmarkast af því, að á næstunni má gera ráð fyrir, að kostnaðurinn aukist enn, sem gengur vitanlega út yfir þann ágóða, sem háskólinn hefur af rekstrinum. Má gera ráð fyrir, að hagnaðurinn verði jafnvel minni en verið hefur, ef dýrtíðin heldur áfram að vaxa eins og hún hefur gert nú um sinn.
Ég er sannfærður um það, að það, sem hv. þm. er inni fyrir í sambandi við umr., sem nú hafa farið fram, er allt annað heldur en málið sjálft í raun og veru, sem fyrir. liggur, — sé ég því ekki ástæðu til að fara lengra út í að ræða það að sinni.
Ég geri ráð fyrir, að þetta mál fari til fjhn. Þegar þetta happdrættismál kom fyrst inn í þingið, mun það hafa farið til menntmn. En eins og málið liggur nú fyrir, þar sem nú er eingöngu um fjárhagshlið málsins að ræða, en ekki höfuðtilgang, finnst mér fara betur á því, að það fari til fjhn. Geri ég það þó ekki að ágreiningsatriði.