20.02.1941
Neðri deild: 4. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í B-deild Alþingistíðinda. (604)

6. mál, happadrætti

Garðar Þorsteinsson:

Aðeins örfá orð. — Hv. þm. Barð. (BJ) gaf mér tilefni til að standa upp. Það, að kapphlaup hafi verið milli mín og háskólans um fasteignakaup, er alger misskilningur. Þar gat ekki verið um kapphlaup að ræða, þar sem ég var kominn að marki, þegar háskólinn fór af stað. En í Austurstræti 5 var kapphlaupið við Búnaðarbankann. Þetta vildi ég leiðrétta.

Hæstv. fjmrh., hélt því fram, að það, sem gerði það að verkum, að ég og aðrir hv. þm. gerðumst svo djarfir að minnast á þetta mál hér væri annað en það mál raunverulega, sem fram er komið hér. Hæstv. ráðh. getur að vísu hafi sinar hugmyndir um það fyrir mér. En það, sem hér er um að ræða, er það, sem á undan er gengið í þessu máli.

Hæstv. ráðh. sagði réttilega, að þessar skuldir, sem stofnað hefði verið til vegna háskólans, yrði að greiða, hvað sem það kostaði. Þetta er náttúrlega rétt. Í fyrra var samþ. framlenging á einkaréttinum, sem háskólinn hefur til þess að reka happdrættið. Nú er hér um að ræða hækkun á verði miðanna. Næsta ár verður það e. t. v. hvort tveggja. En hvers vegna? Það er vegna þess, að þeir, sem ráðin hafa um þetta mál, hafa ráðizt í framkvæmdir og stofnað skuldir, sem hæstv. ráðh. lýsir yfir, að skilyrðislaust verði að greiða. En hættan er á þessu, þegar einhverjir aðrir utan valdsviðs ríkisins hafa full umráð yfir tekjustofnum fyrir einhverjar framkvæmdir. Ráðh. segir svo, að skuldirnar verði að greiða, án þess að ráðh. hafi um það að segja, hvers vegna og hve miklar skuldir eru stofnaðar. Þetta virðist mér ekki heilbrigt, að það skuli geta skeð, að stofnun sem þessi skuli geta stofnað til svo mikilla skulda, að það þurfi að gefa henni ný fríðindi til þess að standa straum af þeim. Ég get sagt það, að það gleður mig, að háskólinn er kominn upp. En hins vegar er vitað, að í þetta hefur verið lagt of mikið fé. Það er ekki gaman, þegar erlendir prófessorar koma hingað, að það sé farið með þá niður í kjallarann hér í alþingishúsinu. Það er meira gaman að geta sýnt þeim fallegt hús. En það eru skattborgararnir, sem lagt hafa þetta fé fram, þó að hér sé um frjáls framlög að ræða. Það er því ástæðulaust fyrir hæstv. ríkisstj. að hlutast ekki til um, að þeir hinir sömu fái aðgang að þeim reikningum, sem snerta þetta mál.

Það má lengi deila um það, hvaða byggingu sé nauðsynlegt að koma upp og hverri eigi að ljúka fyrst. En ég er á sama máli og hæstv. ráðh. um það, að þjóðleikhúsið er sorglegur vottur þess, að lagt er í að byggja hús, sem ekki er hægt að fullgera. Það er ákaflega leiðinlegt, þegar menn leggja í byggingar, sem svo er ekki hægt að ljúka við. Hitt er svo annað mál, að ófyrirsjáanleg atvik geta hafa valdið því, að ríkissjóðs vegna hefur ekki verið hægt að láta skemmtanaskattinn renna til þjóðleikhússins. En mér virðist það fullkomið umhugsunarefni, hvort ekki væri rétt, að einhver hluti skemmtanaskattsins, sem almenningur lætur af frjálsum vilja, væri látinn renna til þjóðleikhússins.

Þó að forráðamenn háskólans séu sjálfráðir um það, hvernig því fé er varið, sem happdrættið gefur af sér, þá verða þeir hinir sömu þó að leita til Alþ. um frekari ívilnanir, þegar það er álitið nauðsynlegt. Er það því skylda hæstv. Alþ. að líta eftir því, hvort vel er farið með þetta fé, sem skattborgararnir leggja fram, og hvort það gæti ekki jafnvel komið einhvers staðar annars staðar að notum.

Það má alltaf segja sem svo, að of seint sé að byrgja brunninn, þegar barnið er dottið ofan i. En eigi sá málsháttur við, má eins vel segja, að menn eigi að láta það sér að varnaði verða að hafa ríki í ríkinu, sem geti stofnað skuldir, sem fjmrh. verður svo að segja um, að þær verði að greiða, hvað sem það kostar. Mér virðist sem sagt, að ríkisvaldið eigi að hafa nokkurn íhlutunarrétt um stofnun slíkra skulda.

Og vitað er, að þessir menn, eða aðalmaðurinn a. m. k., eru að fitja upp á því að reisa hús, sem kostar e. t. v. meira en heill háskóli, en þar með eru komnar skuldbindingar, sem þarf að greiða.

Það, sem fyrir mér vakti, var að fá að vita, hvað hæstv. ráðh. ætlast fyrir í þessu efni. Ég verð að telja það illa farið, ef hæstv. ríkisstj. ætlar að fara að taka upp þann hátt, þar sem vafi leikur á um það, hvort rétt sé að gefa út bráðabirgðal., að víkja þá heldur til þeirrar hliðarinnar að gefa út l., í stað þess að láta það ógert.