12.03.1941
Neðri deild: 16. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í B-deild Alþingistíðinda. (610)
6. mál, happadrætti
Gísli Guðmundsson:
Það eru aðeins fáein orð. Ég vildi aðeins geta þess, út af því, að það mun ekki vera alveg rétt, sem fram kom hjá hv. frsm. n., að sú hækkun á byggingarkostnaði háskólans, sem orðið hafi fram yfir það, sem áætlað hafi verið áður, sé eingöngu vegna verðhækkunar, — hún mun sem sé ekki aðallega vera vegna verðhækkunar. Þegar áætlunin var gerð upphaflega, mun hún hafa verið nálægt einni millj. kr. Nú, samkv. upplýsingum, sem fyrir liggja, mun kostnaðurinn vera orðinn um tvær millj. kr. En það liggur fyrir í bréfi húsameistara ríkisins til fjhn., að sú hækkun, sem stafar af breyttu verði, nemi 324 þús. kr., þannig að það liggur beinlínis fyrir í þessu bréfi, að verðhækkunin nemi þessu. En milli sex og sjö hundruð þús. kr. hækkun virðist stafa af því, að áætlunin virðist hafa verið gerð fjarri lagi, eða að húsbyggingunni hafi verið svo breytt frá því, sem ráðið var. fyrst.