02.05.1941
Neðri deild: 49. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í B-deild Alþingistíðinda. (670)
17. mál, loftvarnir
Frsm. (Vilmundur Jónsson) :
Þetta frv. er flutt af ríkisstj. og er staðfesting á bráðabirgðal. um loftvarnaráðstafanir, sem sett voru á síðastl. sumri. Eftir þeim ákvæðum hefur verið starfað í Reykjavík og nokkrum öðrum stöðum á landinu. Allshn. hefur farið yfir frv. og orðið
ásátt um afgreiðslu þess. Leggur hún til, að það verði samþ. með nokkrum breyt.
Þessar breyt. eru í því fólgnar, að fært verði út svið l. þannig, að þau nái yfir hvers konar hernaðaraðgerðir sem er, hvort sem það eru loftárásir eða aðrar aðgerðir. Einnig að gerðar verði ráðstafanir til þess, að sem minnstar tálmanir verði í sambandi við brottflutning frá hættusvæði, ef skyndilega þyrfti til slíks að grípa. Vonast ég til, að n. hafi tekizt að orða þessi ákvæði, sem ná til leigunáms skipa, bifreiða og annarra farartækja, svo og húsnæðis, þannig að það geti ekki valdið ágreiningi.
Í 3. lagi er gert ráð fyrir því, að ríkisstj. sé heimilt að setja nánari reglur um framkvæmd l., og hefur loftvarnan. í Reykjavík, sérstaklega óskað eftir því.
Ég mun ekki hafa fleiri orð um málið, en vænti þess, að hv. deild fallist á þessar till. og síðan á frv.