22.04.1941
Neðri deild: 42. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 365 í B-deild Alþingistíðinda. (689)
20. mál, alþýðutryggingar
Frsm. (Gísli Guðmundsson) :
Frv. það, sem hér liggur fyrir á þskj. 20, er stjórnarfrv. um breyt. á l. nr. 73 7. maí 1940. Frv. felur í sér staðfestingu á bráðabirgðal., sem gefin voru út í fyrra, en þau bráðabirgðal. voru aðallega framlenging á l. frá síðasta Alþingi um breyt. á tryggingal. vegna hins breytta ástands. Í l. frá Alþingi voru þær breyt. bundnar við árið, en í stjórnarfrv. var svo ákveðið, að ákvæði bráðabirgðal. skyldu vera í gildi meðan verðlagsvísitalan væri 110 eða hærri.
Allshn. hefur haft stjórnarfrv. til athugunar og átt tal um það bæði við félmrh. og forstjóra tryggingastofnunar ríkisins. Niðurstaðan af því varð sú, að n. hefur mælt með frv., en auk þess fallizt á að gera nokkrar viðtækari breyt. á alþýðutryggingal., sem allar eru til samræmis við þá breyt. á verðlagi, sem orðið hefur.
Ég skal í stuttu máli gera grein fyrir efni frv. eins og það yrði með þeim breyt., sem allshn. hefur á því gert.
Í fyrsta lagi er ákveðið, að slysatryggingardeildin greiði uppbætur til samræmis við vísitölu kauplagsn. Það er úr bráðabirgðal. Þá er gert ráð fyrir því, að hámark framlags ríkissjóðs og sveitarsjóða til sjúkrasamlaga hækki í samræmi við vísitöluna. Þessi framlög eru, eins og hv. þm. er kunnugt, um 25% af iðgjöldunum, en auk þess mega þau ekki fara fram úr 10 kr. á hvern samlagsmann á ári. Það er lagt til, að þetta álag hækki í samræmi við vísitöluna. Þá er gert ráð fyrir því, að Lífeyrissjóður Íslands greiði 30% af heildarupphæð ellilauna og örorkubóta samkv. 2. tölul. 80. gr. tryggingal. Þetta ákvæði er úr bráðabirgðal. Þá er gert ráð fyrir því, að persónuleg iðgjöld verði innheimt með verðlagsuppbótum. Í ákvæðum sjúkrasamlagsl. er það tekjuhámark sett, að þeir njóti ekki hlunninda úr sjúkrasamlögum, sem hafi 4500 kr. í skattskyldar tekjur eða meira. Gert er ráð fyrir, að þessu ákvæði sé breytt í samræmi við verðlagið að því leyti, að skattskyldar tekjur teljist fyrst um sinn hreinar umreiknaðar tekjur, eins og gert er ráð fyrir í frv. um breyt. á tekju- og eignarskattinum, en ég vil taka það fram, að það er ef til vill ástæða til að breyta þessu ákvæði við síðustu umr. málsins, þannig að vitnað sé í það frv., sem væntanlegt er um breyt. á skattal. Sömuleiðis er gert ráð fyrir því, að gjald það af tekjum, sem greitt er til ellitryggingar, 1%, sé reiknað á sama hátt af umreiknuðum tekjum, í stað þess að nú er það reiknað af skattskyldum tekjum. Ég skal taka það fram, að þessi till. er ekki komin frá ráðuneytinu eða tryggingarstofnuninni.
Þá eru þar ákvæði úr bráðabirgðal. um það, að ríkissjóður endurgreiði Lífeyrissjóði Íslands það, sem hann þarf að greiða til ellilauna fram yfir 3/4 af því framlagi, sem ákveðið er í l.
Ég hef þá gert grein fyrir þeim atriðum, sem þetta frv. fjallar um, og þeim viðbótartill., sem allshn. gerir, og vænti þess, að hv. þm. sé ljóst, hvað hér er um að ræða. Þau ákvæði, sem um er að ræða, eiga það sameiginlegt, að þau eru gerð vegna þeirrar breyt., sem orðið hefur á almennu verðlagi, og eru því í samræmi við margar aðrar ráðstafanir, sem Alþingi hefur gert og er að gera.