02.05.1941
Neðri deild: 49. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í B-deild Alþingistíðinda. (697)
20. mál, alþýðutryggingar
Haraldur Guðmundsson:
Ég vil benda hæstv. forseta á það, að við 2. umr. voru teknar aftur 2 brtt., og hugsa ég, að um það muni verða samkomulag í n. að taka aðra brtt. aftur fyrir fullt og allt. Ég óska því eftir, að hæstv. forseti fresti málinu og taki það fyrir á væntanlegum fundi d. í kvöld.