27.03.1941
Neðri deild: 24. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1280 í B-deild Alþingistíðinda. (70)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
Einar Olgeirsson:
Um leið og ég vil taka undir ummæli hv. 2. þm. Árn., vil ég leyfa mér að minna á það, að nokkru áður en stjórnarfrv. um verðlagsuppbót á laun embættismanna ríkisins kom fram, fluttum við þm. Sósíalistafl. í þessari deild frv. með álíka fyrirsögn og sama efnis. Nú hefur frv. stj. gengið í gegnum Ed. og er komið til n. í þessari hv. deild, en frv. okkar hefur ekki einu sinni verið tekið til umræðu. — Ég vil leyfa mér að minna á þetta, til þess að sýna, að ekki hefur staðið á okkur, að mál þetta hlyti sem skjótasta afgreiðslu.