13.05.1941
Efri deild: 59. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 370 í B-deild Alþingistíðinda. (708)

20. mál, alþýðutryggingar

Fjmrh. (Jakob Möller) :

Ég hleyp hér í skörðin fyrir hæstv. félmrh., sem þetta mál heyrir undir.

Þannig er mál með vexti, að við athugun á frv., eins og það nú liggur fyrir, þá hefur þótt réttara að vekja athygli á því, hvernig verður um framkvæmd á innheimtu af hundraðsgjaldinu af skattskyldum tekjum til lífeyrissjóðs. Ég geri ráð fyrir, að hæstv. félmrh. hafi lítið svo á, að þetta hundraðsgjald af skattskyldum tekjum til lífeyrissjóðs bæri, samkv. gildandi l., að innheimta af hreinum tekjum. En við athugun á því við skattstjórann í Reykjavík og aðra, sem um þetta eiga að fjalla, þá er nokkur ágreiningur um það. Og ef ekki eru sett skýr ákvæði um þetta, mætti gera ráð fyrir, að framkvæmdin yrði þannig, að lífeyrissjóðsgjaldið yrði tekið af umreiknuðum tekjum, en ekki hreinum tekjum að frádregnum persónufrádrætti, eins og hafði nú verið gert ráð fyrir, að mundi verða í framkvæmdinni. Þegar í allshn. hv. Nd. kom þessi spurning upp, og n. flutti beinlínis till. um, að gjaldið yrði tekið af umreiknuðum skattskyldum tekjum. En það verður að athugast, að það gegnir öðru máli um lífeyrissjóðsgjaldið heldur en tekjuskatt að því leyti, að umreikningur í sambandi við tekjuskattinn er gerður fyrst og fremst vegna stighækkunar tekjuskattsins, til þess að koma skattinum á það stig í skalanum, sem raunverulegt verðmæti teknanna vísar til, þ. e. a. s. að breyta verðgildi teknanna til samræmis við það, sem var áður en ófriðurinn og verðhækkunin kom, meðan verið er að reikna út skattinn, til þess að það komi ekki stighækkun í skattálagningunni vegna tölulegrar hækkunar tekna, en ekki aukins verðmætis. Þess vegna, ef sama regla ætti að gilda um hundraðsgjaldið til lífeyrissjóðs eins og við álagningu skatts, þá ætti að fara að öllu leyti eins að, umreikna fyrst til þess að ákveða gjaldið og umreikna svo gjaldið upp á við aftur. En þá kæmi bara því sem næst nákvæmlega sama út eins og án umreiknings. Vegna þessa hefur hæstv. félmrh. orðið við tilmælum forstjóra tryggingarstofnunarinnar um að flytja brtt. við þetta frv., sem hér liggur fyrir, sem ætti að taka af öll tvímæli um þetta. Ég hef svo, eins og eins konar ábekingur á víxli, samþ. að vera meðflm. að þessari brtt., en vil annars aðallega vísa því til hv. n. að athuga þetta rækilega milli umr., og er þess reiðubúinn að taka þessa brtt. aftur til 3. umr., í því skyni, að n. taki þá endanlega ákvörðun.

Þar að auki þykir réttara að bæta við til skýringar aftan við e-lið 1. gr. frv. að vísa til 4. gr. l. um breyt. á l. um tekju- og eignarskatt, þar sem í gr. er talað um að miða við umreiknaðar, hreinar tekjur. Brtt. eru þá þannig orðaðar:

1. Við 1. gr. Aftan við e-lið bætist : sbr. 2. málsgr. a-liðar (55. gr.) 4. gr. laga um breyting á lögum um tekju- og eignarskatt.

2. Við 2. gr. Á eftir greininni komi ný grein,

3. gr., svo látandi :

Lífeyrissjóðsgjald samkv. 2. tölul. 49. gr. skal miðast við hreinar tekjur, að frádregnum persónufrádrætti.

Ég leyfi mér svo að afhenda hæstv. forseta þessar brtt., sem ég er reiðubúinn að taka aftur til 3. umr.