09.05.1941
Neðri deild: 55. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 383 í B-deild Alþingistíðinda. (735)

19. mál, óskilgetin börn

Garðar Þorsteinsson:

Ég hef skrifað undir nál. með fyrirvara, af því að ég er á móti brtt. á þskj. 401, við 1. gr. tölul. 1. Ég get ekki fallizt á, að greidd sé frá ársbyrjun 1941 verðlagsuppbót á barnsmeðlög, en ekki af þeirri ástæðu, að ég geti ekki fallizt á, að barnsmeðlög verði hækkuð í hlutfalli við vaxandi dýrtíð. Nú eru l. í gildi um þetta efni frá 1935, og þar segir á þá leið, að upphæð meðalmeðlaga ákveði atvinnumálaráðuneytið, að fengnum till. bæjar- og sveitarstjórna, fyrir 3 ár í senn. Eins og hæstv. félmrh. upplýsti, þá var nokkur dýrtíð komin á, þegar síðasti meðalmeðlagsúrskurður var kveðinn upp. Þá mun hafa verið ákveðið að hækka meðlögin um 17–20% með tilliti til dýrtíðarinnar. Eins og segir í grg., þá var það álit hæstv. félmrh., að til þess að mæta dýrtíðinni væri réttast að hækka meðlögin, og í stað þess að binda meðlagsuppbótina við vísitölu, að breyta ákvæðum löggjafarinnar á þann hátt að kveða upp úrskurð fyrir aðeins eitt ár í senn. Með því móti mundi nást sami árangur og af brtt. allshn., að binda hækkunina við vísitölu. Ég hygg, að hlutur þeirra, sem meðlaganna eiga að njóta, verði ekki verri fyrir það, þó að dýrtíðinni sé fylgt með því að kveða upp úrskurð einu sinni á ári og þau hækki eftir því, sem dýrtíðin vex; og mundi þetta reynast mjög auðvelt í framkvæmdinni.

Nú eru greidd meðlög með börnum eftir því, hvaða meðalmeðlag gildir á þeim stað, þar sem barnið dvelur. Eigi nú barnsfaðirinn heima í öðru sveitarfélagi, verður það sveitarfélag, sem greiðir meðlagið vegna þess að barnsfaðirinn er fjarverandi, að endurkrefja það sveitarfélag, þar sem hann býr. Verður innheimtan og endurinnheimtan miklu léttari fyrir sveitarfélögin, ef sama upphæðin gildir fyrir allt árið, í stað þess að hún breytist mánaðarlega, ef till. n. næði samþykki, og mun kunnugt, hversu erfitt er að innheimta barnsmeðlög milli héraða, ekki sízt ef þau breytast mánaðarlega. Ég sé nú ekki í þessu tilfelli, hvernig greiða megi hreina dýrtíðaruppbót af upphæðinni, sem þegar er búið að hækka um 20% vegna aukinnar dýrtíðar, því að það væri að greiða uppbót af uppbót. En ef á að fylgja þeirri reglu, sem ég legg til, og meðlögin ákveðin með úrskurði einu sinni á ári, ætti að greiða uppbót á þau eins og þau voru, áður en þau voru hækkuð vegna dýrtíðar. Ef t. d. meðlag fyrir stríð hefði verið 100 kr., en samkvæmt síðasta úrskurði komið upp í 120 kr., á ekki að borga dýrtíðaruppbót af 120 kr., heldur af 100 kr. Í raun og veru skiptir þetta ekki svo miklu máli, en ég álít heppilegra að úrskurða einu sinni á ári. En sama hugsunin vakir þó fyrir okkur öllum, að hækka þurfi meðalmeðlögin eftir því, sem dýrtíðin vex. En ég vil ekki, að það sé gert á þann hátt, sem allshn. leggur til, heldur skuli greiða uppbótina á meðlögin eins og þau voru fyrir hækkunina. Skal ég svo ekki hafa um þetta fleiri orð, en vænti þess, að 1. brtt. allshn. verði felld.