10.05.1941
Neðri deild: 56. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 387 í B-deild Alþingistíðinda. (740)

19. mál, óskilgetin börn

Gísli Sveinsson:

Herra forseti! Þar var fyrr frá horfið, minnir mig, er hv. þm. Barð. hafði haldið aðra eða þriðju ræðu, sem sannfærði mig um það, að ég hafði komizt allt of væglega að orði, þegar ég taldi á misskilningi byggt og að sumu leyti af óskiljanlegu tillitsleysi til héraða, þetta, sem meiri hl. n. lagði til að breyta frv. stj. Eftir að ég sannfærðist af ræðu hans um hina gagngerðu vanþekkingu á þessu máli, sýndi ég fram á nokkurn veginn ljóst, að lagasetning, sem verið hefur í gildi um þessi efni, var á þann veg, að fyrir 3 ár væru gerðar till.— og eru ávallt gerðar till. — frá sýslunefndum og bæjarstjórnum um ákvörðun meðalmeðlags. Ríkisstj. hefur vald til þess samkv. þeim l. að úrskurða þessi meðalmeðlög og hefur allajafna gert það og farið sem næst till., sem koma úr héruðum; í sárafáum tilfellum hefur hún vikið þar frá, nema þá til samræmis. Þó hefur upp á síðkastið gætt nokkurrar tilhneigingar hjá ríkisstj. til þess að hækka meðlag á ýmsum stöðum fram úr till. sýslunefnda, einkanlega úti á landinu, og má ýmislegt segja því til gildis, svo sem að hækkun kostnaðar var komin til greina áður en styrjöldin skall á, sem nú er kennt um alla dýrtíð, sérstaklega í kaupstöðunum. Samt. sem áður mun mönnum á slíkum stöðum hafa þótt nóg um, þótt ekki fengju þeir að gert.

Nú segir hv. þm. í öngum sínum, að það sé engan veginn svo, að héruðin ráði þessu. Því heldur enginn fram. En hinu er haldið fram, að það sé skylt að gera til., og þær eru gefnar ávallt og eftir þeim er í aðalatriðum farið, sem og skylt er, nema þá til samræmis í einstökum undantekningum, eins og ég tók fram, þegar þetta dagskrármál var síðast fyrir. Hv. þm. virtist hafa gleymt því, sem ég skýrt tók fram, og má hann sjálfum sér um kenna, ef hann man ekki það, sem menn segja. Bið ég hann að muna orð mín betur næst og vona, að hann heyri nú það, sem ég segi. (BJ: Það má nú heyra minna, held ég!) Ég færði líka rök að því, sem einnig lá fyrir með fullri víssu, að ríkisstj. hefur skeikað ofurlítið frá lögunum, en af nauðsyn — eins og ég viðurkenndi —, þar sem hún hækkaði á síðasta ári frá till. sýslunefnda og bæjarstjórna. Þetta var ekki ýkjamikið, og sums staðar ekki neitt. En stj. tók þann upp, vegna hinnar ört vaxandi dýrtíðar, að ákvarða meðlög fyrir eitt ár, enda þótt lögin segi þrjú ár. Ég féllst á, að þessi undantekning mátti eiga sér stað, þar sem vitað var, að frv. yrði brátt lagt fram af hálfu ríkisstj. til staðfestingar á þessari breyt., enda þótt þessi l. eigi að vera aðeins til bráðabirgða, því að frv. ber ljóslega með sér, að svo er til ætlazt, enda tekið fram, að með vissum hætti skyldu þessi nýju ákvæði falla úr gildi nær því sjálfkrafa með útgáfu skjals, sem kæmi í staðinn fyrir afnám l. Þetta var gert til hægðarauka og miðað við bráðabirgðaástand eða neyðarástand, en engin ástæða til að taka sem gerbreytingu fyrir ókomna tíð að öllu leyti. En breyt. þær, sem meiri hl. n. leggur til, tel ég, að verði til svo mikillar truflunar á þessari lagasetningu, einkum í framkvæmd, og það er algerlega undir hælinn lagt, hvort tilgangi breyt. verður náð, og að öðru leyti fullvíst, að mjög mikið fer í handaskolum, enda ofurseljast héruðin algerlega á vald hinnar svokölluðu vísitölu, sem oft er erfitt að elta uppi.

Tilganginum er fyllilega náð með stjfrv., að á hverju ári verði þetta ákvarðað fyrir eitt ár, að sama upphæðin gildi fyrir heilt ár, til þess að möguleiki megi teljast, að hún verði innheimtanleg með nokkurn veginn góðum hætti. Vísitölubreytingin gerist sem sé svo ört og svo oft á ári, að engin leið er að fylgja henni, og verða þá eftirkaup að eiga sér stað, og getur þá allt verið rokið út í veður og vind og ómögulegt að vita, hvenær eða hvort menn greiða yfirleitt nokkurn tíma þessar viðbætur.

Ég hjó eftir því hjá hv. frsm., að hann virtist ætta að færa einhver sérstök rök fyrir því, að fara hér inn á vísitölubrautina til að hækka meðlögin jafnóðum, með því að segja, að allar stéttir — eiginlega allir menn í þessu landi — hefðu fengið hlutfallslega vísitöluhækkun. Það er merkilegt að bera þetta fram í þessari hv. d., þar sem allir viðstaddir vita, að það er öðru nær og tiltölulega aðeins nokkrar greinir starfsmanna komnar í það horf. Þessi röksemd er því fallin, því að hún er röng.

Það hefur nú borizt í hendur mínar í dag umsögn um þetta nál. frá allshn., þar sem þess er getið, hvað framfærslufulltrúar og yfirleitt þeir, sem ráða þessum málum í þessum bæ, segja um þetta. Umsögnin er undirrituð af einum framfærslufulltrúanum og tekur skýrlega fram auk annars, hvernig þessum málum hefur verið farið undanfarið um kostnað og tilhögun, og hversu erfitt hefur verið að sumu leyti að eiga við þau. Ég vil, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp nokkrar setningar, sem víkja að því, sem hér er um að ræða :

„Þessi tilhögun, að greiða verðlagsuppbót á meðlögin, en verðlagsuppbótin getur breytzt mánaðarlega, er mjög óhentug í framkvæmdinni. Meðalmeðlögin eru greidd fyrirfram fyrir sex mánuði í einu, og kæmi þá naumast annað til greina en að greiða uppbótina eftir á, einnig fyrir 6 mánuði í einu. Langmestur meiri hl. mæðra óskilgetinna barna telur það mikil fríðindi að þurfa ekki að sækja meðlögin mánaðarlega, enda eru þær vanar þessari gömlu tilhögun. Útreikningur uppbótarinnar yrði mjög tafsamur, þar sem meðlögin falla á mjög mismunandi tímum og ekki yrði unnt að notast við meðaltal, heldur yrði að reikna út uppbótina fyrir hvern mánuð um sig. Þá má gera ráð fyrir því, að framkvæmd hins nýja fyrirkomulags gengi illa í sveitum og fámennum kauptúnum, því að óvíst er, að oddvitar fylgist nákvæmlega með verðlagsvísitölunni. Þetta fyrirkomulag hefur einnig slæm áhrif á innheimtu barnsmeðlaga. Barnsfeður gætu aldrei vitað með vissu, hve mikið þeim bæri að greiða, og sama er að segja um þá menn, sem innheimtuna annast.“

M. ö. o.: Þeir, sem mesta skipulagningu hafa á þessum málum, treysta sér ekki út í að starfa undir þessu.

Einnig stendur hér síðast :

„l. Reglan um verðlagsuppbót á meðalmeðlög, sem breytist eftir vísitölu þeirri, sem verðlagsuppbót embættismanna o. fl. er ákveðin eftir, er of umfangsmikil og vafsturssöm, auk þess sem það er með öllu óvíst, hvernig hún verður framkvæmd í sveitum. Höfuðregla frv., að taka tillit til dýrtíðarinnar með því að ákveða meðalmeðlögin árlega, er miklu aðgengilegri.

Sé hins vegar um það að ræða að veita verðlagsuppbót frá 1. jan. 1941, þar til meðlögin verða ákveðin næst (í ágúst 1941), liggur nær að greiða ákveðna uppbót á meðlögin mánaðarlega, þetta tímabil t. d. 10 kr. eða aðra upphæð, sem betur þykir henta.

2. Það virðist ekki rétt að greiða uppbót á meðalmeðlög, eins og þau eru ákveðin með auglýsingu félagsmálaráðh. 6. sept. 1940, þar sem þá hefur verið tekið að nokkru leyti tillit til dýrtíðarinnar. Frekar ætti að miða við meðlögin eins og þau voru ákveðin samkv. auglýsingu atvinnu- og samgöngumálaráðuneytisins 27. okt. 1937.“

Hér er komið að sömu niðurstöðu og ég sýndi fram á, að væri óhjákvæmileg, — þeirri niðurstöðu, að þetta sé ekki aðeins óþarft, heldur líka að öllu leyti svo vafsturssamt og erfitt í framkvæmd, að þegar af þeirri ástæðu mætti ekki að óþörfu vera að gera það að verkum, sem tefði alla framkvæmd þessara mála. En í annan stað er það ekki viðurkennt um landið þvert og endilangt, að þessi aðferð sé réttmæt. Hún er fundin upp hér á þingi og hefur komið inn á ýmsum stöðum, þar sem mátti kalla, að réttlætanlegt væri. En það er engan veginn víst, að demba megi henni inn í öll bæjar- og sveitarstjórnarmál. Þær stjórnir hafa sannarlega nóg á sinni könnu og nógar byrðar að bera. Ég vona því, að hv. d. sjái sér fært að láta þessa breyt. hverfa og halda sér við stjfrv., sem í alla staði verður að telja réttast, vegna þess líka, að þar hefur fengizt leiðrétting á ýmsu, sem leiðréttingar þurfti við í þessu efni.