16.05.1941
Efri deild: 62. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í B-deild Alþingistíðinda. (750)
19. mál, óskilgetin börn
Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson) :
Þetta mál hefur tekið nokkrum breyt. í hv. Nd. frá því, sem það var afgr. hér síðast við 3. umr., og er breyt. eingöngu fólgin í því, að verðlagsuppbót á barnsmeðlög, sem úrskurðuð eru samkv. þessum l., skuli greiða frá ársbyrjun 1941 og fylgt skuli vísitölu, sem gildir á hverjum tíma um laun embættismanna og starfsmanna ríkisins. Þetta er aðalatriði þeirrar breyt., sem gerð var á frv. í hv. Nd.
Að vísu hefur allshn. þessarar d. ekki tekið neina afstöðu til þessarar breyt. Ég hef þó talað við meiri hl. n., og fellst meiri hl. n. á þessa breyt. og mælir með því, að frv. verði samþ. í því formi, sem það er nú.