20.05.1941
Efri deild: 64. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 393 í B-deild Alþingistíðinda. (755)
19. mál, óskilgetin börn
Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson) :
Herra forseti! Þetta mál var tekið af dagskrá samkv. ósk allshn. og n. hefur athugað málið, en árangur þeirrar athugunar er till. n. á þskj. 559, sem er á þá leið, að aftan við 1. gr. bætist, að við ákvörðun meðalmeðgjafa meðlagsárið 1. ágúst 1941–31. júlí 1942 skuli tekið tillit til þess, að eigi voru greiddar verðlagsuppbætur á meðlög næsta meðlagsár á undan. En það, sem vakir fyrir n., er að reyna að sýna nokkra leiðréttingu á því misrétti, að engin dýr tíðaruppbót falli barnsmæðrum í hlut fyrr en eftir 1. ágúst í ár. Þetta fólk er sett skör lægra en allir aðrir landsmenn, sem fá fé frá því opinbera.
Ég hefði óskað, að hægt hefði verið að ganga öllu ákveðnara til verks en gert er, sbr. till. allshn. Nd. Það er kunnugt, að sú till. fékk svo nauðalítinn byr, að vonlaust má telja að taka hana upp hér og fá Nd. til að fallast á hana. Allshn. þessarar deildar vildi því ekki taka till. upp.
Með þessu er lagt nokkurt vald í hendur viðkomandi ráðh. um að taka fullt tillit til þess við ákvörðun meðlags á þessu ári, að lítil uppbót hafi verið veitt 1940–1941. Það mun þó hafa verið tekið tillit til þeirrar dýrtíðar, er orðin var í árslok 1939, við útborgun. Gerum ráð fyrir, að með þessari heimild sé hægt að bæta að mestu leyti úr því misrétti, sem nú er í frv. gagnvart þessu fólki. — Ég skal taka fram um brtt. á þskj. 577, sem er að mestu endurprentun á till. úr Nd., að það er vonlaust um, að hún nái fylgi þingsins, og get ég því ekki greitt henni atkv., og enda þótt hv. d. féllist á till., er mesta óráð að hrekja málið af þeirri ástæðu á milli d. og eiga á hættu, að það verði fellt í Nd.