23.05.1941
Sameinað þing: 19. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1282 í B-deild Alþingistíðinda. (77)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Forseti (HG) :

Ég hef litlu við að bæta það, sem hv. form. allshn. sagði, en ég mun að sjálfsögðu gera mitt til að flýta fyrir afgreiðslu þessara mála.

Áður en gengið er til dagskrár, vil ég geta þess, að flokksfundir hefjast kl. 6, og verður því að hraða afgreiðslu dagskrármálanna svo sem unnt er.