31.03.1941
Neðri deild: 27. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 408 í B-deild Alþingistíðinda. (813)

9. mál, gjaldeyrisverslun o.fl

Frsm. (Skúli Guðmundsson) :

Þetta frv. á þskj. 9 er stjfrv. til staðfestingar bráðabirgðal., sem gefin voru út hinn 26. jan. síðastl.

Eins og nál. á þskj. 95 ber með sér, hefur fjhn. haft þetta frv. til meðferðar, og leggur hún til, að það verði samþ. með lítilli breytingu, en hún er sú, að 3. gr. verði orðuð þannig : „Með reglugerð er heimilt að ákveða, að óheimilt sé að selja eða veðsetja innstæður á biðreikningum, sem myndaðar eru samkvæmt ákvæðum laga þessara, svo og að setja nánari reglur um, hvernig innstæðunum megi ráðstafa.“ Hefur komið í ljós, að þetta er nauðsynlegt til þess að tryggja, að löggjöfin komi að tilætluðum notum.

Ég skal geta þess í sambandi við brtt. á þskj. 70, að meiri hl. fjhn. taldi sér ekki fært að mæla með því, að hún yrði samþ. N. telur ekki ástæðu til að setja þetta ákvæði í l., þar sem gera verður ráð fyrir, að n. sú, sem ríkisstj. á að skipa samkvæmt 2. gr. l., og hefur þegar verið skipuð, taki tillit til þarfa útvegsins í þessu efni, en í þeirri n. eru fulltrúar frá Landsbankanum og útvegsmönnum.

Ég mun svo ekki hafa um þetta fleiri orð, en mæli með því, að frv. verði samþ. með þeirri breyt., sem fjhn. leggur til á þskj. 95.