23.05.1941
Neðri deild: 65. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1283 í B-deild Alþingistíðinda. (83)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Bergur Jónsson:

Ég vil taka það fram, að þegar mál, hvort sem það er flutt af stj. eða þm., er komið til nefndar og nefndin hefur skilað nál., þá er málið ekki lengur eingöngu mál flm., heldur einnig þeirrar nefndar, sem hefur afgr. það til d. Mig langaði því til að fá upplýsingar um það, hvort það sé nokkuð frá hálfu n., sem gefur tilefni til þess, að málið hefur ekki komið hér á dagskrá.

Í öðru lagi vil ég benda á það, að þetta mál er undirbúið skv. þál. Ed. Alþingis, og tel ég þess vegna, að það sé ekki hægt að líta þannig á, að stjórnin ein hafi um það að segja, hvort málið kemur á dagskrá eða ekki.