23.05.1941
Neðri deild: 65. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 422 í B-deild Alþingistíðinda. (856)

7. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Bjarni Bjarnason:

Þó að ég sé einn þeirra manna, sem telja brtt. hæstv. fjmrh. alls ekki ósanngjarna, þá óska ég þess, að þessu atriði verði ekki breytt frá því, sem áður hefur verið, heldur að það, sem umfram kynni að verða af benzínskattinum, fari til Suðurlandsbrautar óskert. Nú kann að vera, að þessi upphæð verði ekki 100 þúsund, og því síður fari þar fram úr.

Mér þykir það nú sérstaklega undarlegt viðvíkjandi þessari Suðurlandsbraut, hversu menn eru tregir til að skilja, hve óhjákvæmilegt er að hafa góðar samgöngur milli Suðurlandsundirlendisins og Reykjavíkur. Og þótt nú undanfarna vetur nokkra hafi gengið sæmilega að halda uppi þessum samgöngum, vegna þess, hve snjólétt hefur verið, þá er það alþekkt, hve gífurlegir erfiðleikar eru oft á því að komast yfir Hellisheiði og Mosfellsheiði. En þrátt fyrir það, þótt mikill snjór sé á þessum leiðum, þá er það vitað, að sú leið, sem Suðurlandsbrautinni er ætlað að liggja yfir, er oft snjólaus, og ég held ég megi segja einlægt snjólétt, þó að ófært sé yfir þessar fyrrnefndu heiðar. Ég skal játa, að það er mikill munur nú, síðan Sogsvegurinn kom og þannig greiðari vegur um Mosfellsheiði, og það kemur mjög oft fyrir, að önnur heiðin er sæmilega fær, þó að hin sé ófær. En ef við fengjum snjóavetur, þá mundi það sýna sig, að það væri ekki eingöngu Suðurlandsundirlendið, sem liði af þeim erfiðleikum, heldur einnig Reykjavík. Og ég held það eigi ekki að skapast nein togstreita milli Reykjavíkur og Suðurlandsundirlendisins um það að tryggja sem allra bezt þá möguleika, að ferðirnar geti orðið óhindraðar svo sem mest má verða, líka að vetrarlagi.

Það eru ekki rök, sem hæstv. fjmrh. sagði hér í gær, að þessi vegur geti beðið vegna þess, að hann komi ekki að neinum notum fyrr en hann sé alveg lagður, á sama tíma sem aðrir vegir líða vegna fjárskorts til nýbyggingar. Þetta eru ekki rök vegna þess, að þess konar vegagerð er um allt land, að vegir koma ekki að gagni fyrr en þeir eru allir lagðir. Þannig er yfirleitt um alla vegi, sem liggja milli byggða um heiðar eða fjallvegi og ekki er því meiri byggð meðfram. Hérna er það t. d. svo, að það nálgast óðum, að Hafnarfjörður komist í vegarsamband við Krýsuvík; að Þorlákshöfn austanfjalls komist í vegarsamband við aðalveginn gegnum Ölfus; og enn fremur styttist óðum að Selvogi, en þar eru yfir 100 manns, í sama túni, og þeir eiga sannarlega rétt á að fá bættar sínar samgöngur. Ég tel alveg tvímælalaust mjög nauðsynlegt, bæði að Hafnarfjörður nái sambandi við Krýsuvík og Selvogur nái vegarsambandi austan frá. En hvað gert yrði svo til að tengja saman vegina, yrði þess tíma að ákveða. Og það stendur alveg sérstaklega á einmitt nú, að þessari vegargerð liggur á að fá sem mest fé, vegna þess að nú þarf einmitt að tengja Þorlákshöfn við veginn, og það þarf allmikið fé til þess. Það er áfanginn, sem þarf að ljúka í ár, hvernig svo sem verður um fjárframlag á næsta ári.

Mér virðist það vera dálítið einkennilegt, sem þó hefur komið fram hjá kunnugum mönnum, eins og t. d. hv. 8. landsk., að draga úr því, að þessi vegargerð fái sem skjótasta framkvæmd. Hann hefur alltaf lagt sig töluvert fram um það að benda á aðrar leiðir, sem hann telur heppilegri, og einnig nú virðist hann sækja fast, að haldið sé áfram rannsókn á því, hvort ekki sé hægt að gera aðra leið yfir Hellisheiði. Ég hélt hann þekkti manna bezt, að Hellisheiði er erfiður fjallvegur allajafna og verður vitanlega aldrei trygg til samgangna milli Suðurlandsundirlendisins og Reykjavíkur. Hv. 8. landsk. talaði um „stórhug“ minn í þessu sambandi. Það má til sanns vegar færa, að það voru „stórhuga“ menn, sem vildu leggja járnbraut og yfirbyggðan veg yfir Hellisheiði, en að þetta liggi fyrir sem raunveruleiki, býst ég ekki við. Þessi rannsókn, sem hv. þm. beitti sér fyrir, að færi fram á s. l. ári og þessu ári, hefur auðvitað ekki leitt neitt nýtt í ljós. Það er hægt að hlaða upp vegi í það endalausa. En reynslan sýnir, að ef þeir eru á snjóaleið, þá hleðst snjór á þá, ekki kannske hversu háir sem þeir eru, heldur þó að þeir séu allháir, því að þegar er farið að aka og mynda harðspora, hleðst alltaf á vegi á snjóasvæði.

Ég vildi óska, að togstreitan um féð, sem fer í þessa Suðurlandsbraut, falli niður og að þessi braut fái að halda þessu fé, sem af kynni að ganga benzínfénu. Ég veit, að vegamálastjóri hvetur ekki beint til þessarar brautarlagningar. En ég get ekki heldur tekið undir það, sem kom fram í gær, að hann sé sérstaklega andvígur þessari braut. Hann hefur aldrei látið orð falla í mín eyru um það, og í viðtölum okkar hefur hann yfirleitt greitt fyrir þeim óskum, sem fram hafa komið frá minni hendi og annarra, sem mér er kunnugt um. En hins vegar veit ég, að hann lagði mikið kapp á Sogsveginn og norðurleiðina að því marki, sem hún er nú komin, enda mikið vit í því að hafa þessar tvær leiðir.

Ef hæstv. fjmrh. heldur fast við sína brtt., þá get ég auðvitað ekki neitt um það sagt. En ég vil eindregið óska þess, að hv. d. takist að fella þá till., ef hæstv. ráðh. er ófáanlegur til að taka hana aftur.