13.05.1941
Neðri deild: 58. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 436 í B-deild Alþingistíðinda. (897)

21. mál, húsaleiga

Frsm. (Garðar Þorsteinsson) :

Eins og tekið er fram í nál. á þskj. 456, hefur allshn. haft þetta frv. til ýtarlegrar athugunar, en það er shlj. bráðabirgðal., sem sett voru 3. okt. s. l. Í þeim bráðabirgðal., sem n. hefur ekki gert brtt. við, er gert ráð fyrir, að ekki megi taka íbúðarherbergi til annars en íbúðar og ekki megi rífa hús, ef það er íbúðarhæft. Jafnframt er húsaleigunefnd gefið leyfi til að taka autt húsnæði handa húsnæðislausu fólki, að sjálfsögðu gegn fullu eftirgjaldi.

Þessi bráðabirgðal. voru sett vegna þess, að veruleg vöntun var á húsnæði hér í Reykjavík og Hafnarfirði, vegna þess að brezka setuliðið hafði tekið á leigu fjölda húsa.

N. getur fyrir sitt leyti fallizt á þetta frv., en athuga mætti, hvort ekki væri rétt að setja sams konar ákvæði um verzlanir og felast í 1. gr.

Jafnframt því, sem þetta frv, var til athugunar í allshn., komu einnig þar til umræðu tilmæli frá félagi húseigenda hér í bænum um breyt. á húsaleigulögunum frá 14. maí 1940, svo húseigendur gætu hækkað húsaleiguna til samræmis við aukinn viðhaldskostnað.

Stjórn Fasteignaeigendafélagsins hefur komið að máli við n. og skýrt málið frá sínu sjónarmiði. Enn fremur hefur hún sent n. frv. til l. um þær breyt., sem hún óskar, að gerðar séu. Er það frv. prentað hér í nál. ásamt bréfi stjórnarinnar. N. sendi húsaleigunefnd frv. það til umsagnar, og er svar hennar einnig prentað í nál.

Með gengisl. frá 4. apríl 1939 er sett ákvæði um, að óheimilt sé að hækka leigu eftir húsnæði frá því, sem var þann dag, nema að svo miklu leyti sem samrýmist eðlilegri hækkun vegna viðhalds og endurbóta og hækkun á sköttum og vöxtum, sem húseigendur yrðu að greiða. Nú voru þessi ákvæði sett inn í l. nr. 91 1940 með nokkrum viðbótum, þar á meðal því, að l. næðu ekki til einstakra herbergja, sem leigð eru út frá húsum.

N. er sammála um að leyfa húseigendum að leigja íbúðir sínar, án þess að reistar séu skorður við, að hækkun eigi sér stað, sem á þessu stigi fyrir rás viðburðanna eru ekki óeðlilegar. Það má segja, að þrjú atriði komi sérstaklega til greina gegn þessu. Í fyrsta lagi er það vitað, að þótt fólksfjölgunin í bænum væri eðlileg, þá eru hvergi nærri byggð svo mörg hús, að það samsvari eðlilegri fólksfjölgun á venjulegum tíma, en til víðbótar við þetta kemur sá mikli fólksstraumur, sem verið hefur til bæjarins, og sú stóraukna eftir spurn eftir húsnæði, sem af því hefur stafað. Í þriðja lagi bætist það við, að brezka setuliðið hefur reynt það, sem það hefur getað, til að fá sem mest af húsnæði í bænum og tekið á leigu fjölda húsa og íbúða. Af þessu öllu leiðir, að eftirspurnin eftir húsnæði er óeðlilega mikil og þar af leiðandi möguleikar til að hækka húsaleiguna óeðlilega mikið. Þess vegna er álit n., að ekki sé fært að taka burt þær skorður, sem reistar hafa verið af löggjafanum við því, að húsnæði hækkaði. Á hitt er svo einnig að líta í þessu sambandi, að nú fer rekstur húseigna ört vaxandi, sérstaklega viðhaldskostnaður. Eftir því, sem n. fékk upplýsingar og vottorð um, að vísu í gegnum stjórn Fasteignaeigendafélagsins, en frá valinkunnum byggingarmeisturum hér í bænum, var meðalviðhaldskostnaður fyrir stríð 15% af húsaleigunni. Að sjálfsögðu er það jafnaðartala, sums staðar meira og sums staðar minna, og auk þess áramunur að því, því að húseigendur láta sér oft nægja minnsta viðhald í nokkur ár, en gera svo vel við húsin á vissu árabili. Jafnframt segja byggingarmeistararnir, að viðhaldskostnaðurinn hafi ekki hækkað um minna en 100% frá því fyrir stríð. Í húsaleigulögunum er heimilað að hækka leiguna eftir því, sem nauðsynlegur viðhaldskostnaður hækkar, og er það komið undir mati húsaleigunefndar, og verða húseigendur þannig að eiga það undir n., hvort hún vill samþ. að hækka húsaleiguna. Má því búst við, að húseignir gangi úr sér af því, að viðhald sé ekki nægilegt, og getur það ekki verið neinum til hagnaðar, hvorki leigjendum, húseigendum né bænum eða landsmönnum yfirleitt. Til þess að ráða bót á þessu, þannig að húseigendum sé gefinn auðveldari aðgangur að því að hækka húsaleiguna í samræmi við það, sem gera má ráð fyrir, að viðhaldskostnaður hækki, er það, að allshn. gerir það að till. sinni, að fundin sé út vísitala, sem sé miðuð viðalmennan viðhaldskostnað eins og hann var fyrir 4. apríl 1939. Sé hún reiknuð út tvisvar á ári, fyrir 14. maí og 1. okt. Kauplagsnefnd á að reikna hana út með aðstoð hagstofunnar. Með þessu móti vinnst það, að húseigendur geta hækkað húsaleiguna að svo miklu leyti, sem þessi vísitala segir til, að almennur viðhaldskostnaður hafi hækkað. Hins vegar má segja, að þeir, sem verða að greiða meira en meðalviðhaldskostnað, tapi á þessu, en hinir græði á því, en ég held, að þetta muni koma nokkuð jafnt út, ef miðað er við lengri tíma, svo sem 2–4 ár. Einnig er það unnið við þetta, að húseigendur þurfa ekki að leita til húsaleigunefndar til að fá úrskurð í hverju tilfelli, enda er ókleift fyrir n. að ganga um allar íbúðir og fullvissa sig um, hvað viðhaldskostnaður sé mikill og hvað húsaleigan megi hækka frá 4. apríl 1939. Í samræmi við allt þetta þótti allshn. réttast, að þessir óvilhöllu aðilar, kauplagsnefnd og hagstofan, finni, hver hækkun er á viðhaldskostnaðinum, og slík hækkun gangi jafnt yfir alla. Ég vona, að hv. d. geti fallizt á þessa niðurstöðu n., sem nánar er orðuð í brtt.

2. brtt. n. er sú, að húsaleigunefnd sé skylt að hafa lokið við afgreiðslu eða kveðið upp úrskurð um ágreiningsatriði, sem til n. er skotið, innan 14 daga frá því málið var afhent n. til afgreiðslu eða það lagt undir úrskurð hennar. Það liggja fyrir margar kvartanir um það, að n. hafi ekki afgr. mál eða úrskurðað ágreiningsatriði fyrr en eftir verulega langan tíma, og það er að sjálfsögðu óþægilegt fyrir bæði leigusala og leigutaka, að slík ágreiningsefni séu óafgreidd. Þetta kemur að sjálfsögðu af því, að n. hefur haft svo mikið að starfa, að hún hefur ekki komizt yfir þetta verkefni sitt, en ég hygg, að ef úr höndum n.. eru teknir úr skurðir um hækkun vegna víðhaldskostnaðar, þá léttist hennar starf verulega, og er sjálfsagt að hafa tímatakmark um, hvenær úrskurðir eru kveðnir upp, enda er þetta ákvæði í samræmi við það, sem viða er annars staðar í löndum um afgreiðslu ýmissa mála, að dómar og úrskurðir skuli kveðnir upp innan ákveðins tíma.

Ég skal svo bæta því við, að það láðist að taka fram, að þessi almenna vísitala á eðlilega að koma til framkvæmda 14. maí í ár. N. mun athuga það, og verður það væntanlega sett inn í frv.

Frá bæjarstjórn Reykjavíkur hefur n. borizt bréf, sem gengur í þá átt að óska eftir, að sett verði ákvæði, sem tryggi innanbæjarmönnum húsnæði frekar en aðkomumönnum. Ég tel rétt, að d. viti um þetta, en n. hefur ekki gert neina till. um að setja slíkt ákvæði inn í frv., því að með þessu væri komið á nokkurs konar átthagaböndum.

Það, sem húseigendur eru óánægðir með, er það, að hömlur séu settar við, að þeir fái meiri arð af því fé, sem þeir eiga í húseignum sínum, en menn almennt fá, en ég tel, að með till. n. sé komið það mikið á móti þeirra óskum, að n. treysti sér ekki til að ganga lengra, þó að ekki sé því móti mælandi, að þessir menn, sem hafa lagt fé sitt í húseignir og ætlað að hafa af því sitt lífsframfæri, þeir verða nokkuð hart úti, en hins vegar yrði, eins og ég gat um áðan, hækkunin á húsaleigunni væntanlega svo ör, að það gæti orðið óviðunandi fyrir almenning.

Ég vona, að d. hafi gert sér ljóst, út á hvað till. n. ganga og hvað það er, sem vakir fyrir henni með þessum brtt. hennar.