13.05.1941
Neðri deild: 58. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í B-deild Alþingistíðinda. (904)
21. mál, húsaleiga
Ísleifur Högnason:
Það er eitt, sem ég gleymdi að taka fram síðast, er ég talaði, í sambandi við síðustu málsgr. a-liðs í 1. gr., og það er, að nú geta húseigendur séð sér hag í því að breyta íbúðum með eldstó í herbergi handa einstökum mönnum. Þess vegna álít ég, að verði þetta ákvæði samþ. í l., þá verði húsaleigul. að meira eða minna leyti gerð gagnslaus. Þá sé ég ekki betur en að húseigandi, sem getur fært rök fyrir því, að sambærilegt húsnæði hafi verið leigt hærra af öðrum húseigendum, hversu miklu hærra sem það var, geti átt kröfu til þess að fá grunnleiguna hækkaða upp í sama verð. Þetta álít ég alveg óhæft líka.
Ég vona, að allshn. taki þessa liði til rækilegrar yfirvegunar og hvort með þessum ákvæðum sé ekki verið að eyðileggja þá vernd, sem leigjendum á að vera tryggð með þessum l. Það hefur sýnt sig, að ákvæðið um það, að venzlafólk húseiganda sitji fyrir þeim, sem áður hafa búið í íbúðinni, hefur oft komið illa við. Ég álít sjálfsagt, að venzlafólkið sitji við sama rétt og óvenzlað fólk. Ég þekki þó nokkur tilfelli, þar sem venzlafólk húseiganda þóttist þurfa á húsnæði að halda, og hafa leigjendur af þeim ástæðum orðið að hrekjast úr húsnæðinu og út á götuna.