15.05.1941
Neðri deild: 60. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í B-deild Alþingistíðinda. (907)

21. mál, húsaleiga

Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Ég vil þakka hv. allshn. fyrir það, að hún tók til greina það atriði, sem um ræðir í 1. brtt., sem ég tel til bóta, og vil ég fyrir mitt leyti mæla eindregið með þeirri brtt.

Hinar breyt. eru engar efnisbreyt., heldur meira sjálfsögð formsatriði, og sé ég ekki ástæðu til að minnast á þær frekar.