07.06.1941
Efri deild: 73. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í B-deild Alþingistíðinda. (920)
21. mál, húsaleiga
Brynjólfur Bjarnason:
Ég fæ ekki skilið af brtt. hv. 11. landsk. þm., hvort átt er við hlutfallið á milli húsaleigu og viðhaldskostnaðar 4. apríl 19319 eða hvort átt er við hlutfallið á milli húsaleigu og víðhaldskostnaðar og aukins viðhaldskostnaðar. (MG: Ef viðhaldskostnaður er þá 1/10, en nú 2/10, ætti húsaleiga að hækka um 1/10.)
Ég er eins og hv. 1. þm. N.-M. andvígur 1. gr. eins og hún er nú. Það er enginn vafi á, að þær breyt., sem farið er fram á, verða til þess að hækka húsaleiguna almennt, þannig að þetta er ekkert annað en frv. um heimild til að hækka húsaleigu. Það skýtur dálítið skökku við, að Alþ. sé að samþ. l., sem verða til þess að auka dýrtíðina, á sama tíma og það er talið þýðingarmesta mál þingsins að stöðva dýrtíðina og þingi hefur verið frestað í vikutíma þess vegna.
Það er rétt, að það verður ekki hjá því komizt, að húsaleiga hækki í samræmi við viðhaldskostnað, en hún gerir það líka eftir gildandi l. Samkv. 1. gr. þessa frv. eins og hún er nú hækkar öll húsaleiga án tillits til viðhalds. Vísitalan um víðhaldskostnað væri miðuð við, að öllum húsum væri sæmilega haldið við, en þar skortir mjög á, einkum nú á yfirstandandi tíma. Þar vantar viljann eða getuna eða hvort tveggja. Af þessum ástæðum greiði ég atkv. á móti 1. gr. Það eru allt aðrar breyt., sem er brýn nauðsyn að gera á húsaleigul. Samkv. skýrslu bæjarstj. hefur 67 bæjarbúum verið komið fyrir á franska spítalanum og í Austurbæjarbarnaskólanum. Fjölda fólks er kúldað niður til bráðabirgða. Hvað verður um þetta fólk í haust og fjöldamargt annað, sem þá kemur í bæinn? Eftir þessari sömu skýrslu hefur brezka setuliðið afnot af 25 heilum húsum og 11 húsum að nokkru leyti. Í byrjun þings flutti ég frv. um, að bannað væri að leigja setuliðinu og að allir leigusamningar við það féllu úr gildi 14. maí. Því hefur hvað eftir annað verið lýst yfir, að setuliðið mundi flytja burt ákveðinn dag, en aldrei orðið úr því. En það er Íslendinga sjálfra að ákveða, hverjum þeir leigja, og skylda Alþ. að breyta þessu.
Annað atriði var heimild handa bæjarstj. til að leggja á stóríbúðaskatt og taka eignarnámi það, sem fram yfir væri 20 gólfflatarmetra á hvern íbúa. Allt þetta eru nauðsynlegar ráðstafanir. Frv. mitt fór til n., en frá n. hefur ekkert heyrzt. Málið hefur verið svæft, eins og flest önnur nytjamál, en hefði það náð fram að ganga, væri ekkert húsnæðislaust fólk til í Reykjavík.