10.05.1941
Neðri deild: 56. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 452 í B-deild Alþingistíðinda. (932)

134. mál, eyðing svartbaks

Frsm. (Bergur Jónsson) :

Þetta frv. er að mestu leyti shlj. frv., sem ég og hv. 5. þm. Reykv. (SK) höfum flutt á undanförnum þingum. Þó er nú bætt inn ákvæðunum um eitrun.

Hæstv. stjórn hefur nú tekið málið að sér, og það er hún, sem hefur ráðið því, að inn í það voru tekin ákvæði um eitrunina. Og hefur þar ekki sízt ráðið skoðun og álit þess fræðimanns, sem til var leitað, Finns Guðmundssonar. Hafa hv. deildarm. fengið ritgerð hans til yfirlestrar, og leyfi ég mér að vísa til þeirra röksemda, sem þar eru færðar fram.

Eins og sést á nál., er málið afgr. þannig frá allshn., að nm. eru sammála um að mæla með, að frv. verði samþ., en hafa óbundin atkv. um ákvæðin um eitrunina, en með því að engin brtt. er komin fram um það atriði við þessa umr., þá vil ég leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt til 3. umr., og gefa þeim mönnum, sem telja rétt að fella burt þetta ákvæði, tækifæri til að bera fram síðar brtt. þar að lútandi.