12.05.1941
Neðri deild: 57. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í B-deild Alþingistíðinda. (936)

134. mál, eyðing svartbaks

Pálmi Hannesson:

Í sambandi við þetta mál má geta þess, að bæði ég og fleiri náttúrufræðingar erum yfirleitt mótfallnir því að fækka fuglum með eitri, því að það má gera ráð fyrir, að eitrið yrði, auk þeirra tegunda, er eyða bæri, öðrum tegundum að fjörtjóni. En við erum nú að láta rannsaka málið, og vel má vera, að hægt verði að leyfa eitrun, ef það yrði ekki öðrum tegundum dýra að tjóni. En til þess að tefja ekki málið í þessari deild höfum við hugsað okkur að leggja skýrslur þessu viðvíkjandi fyrir Ed., því það mundi tefja málið minna.

Í gildandi lögum frá 1936 er hver ábúandi skyldaður til að eyða eggjum svartbaks á jörðum sínum. Þetta ákvæði hefur verið að engu haft, og þó er eyðilegging eggja tvímælalaust ein bezta aðferðin til að eyða fuglinum.

Mér finnst því, að á meðan ekki er gengið betur eftir, að lagaákvæðum sé hlýtt, sé lítið fengið með því að setja ný lagaákvæði. Hitt er vitanlega gefið mál, að svartbakur er skæðasti vargur í æðarvarpi, og honum virðist fjölga ár frá ári. Einnig er hann eigi alllítill vargur í lax- og silungsveiði, svo að full ástæða er til að halda honum í skefjum.