12.05.1941
Neðri deild: 57. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í B-deild Alþingistíðinda. (939)
134. mál, eyðing svartbaks
Haraldur Guðmundsson:
Ég hafði ætlað að koma með brtt. um að fella burt 2. og 3. gr., en get fallizt á að greiða till. hv. 7. landsk. atkv. Ég vil benda á, að útbýtt hefur verið hér á Alþ. fylgiriti með þessu frv., og einnig frv. um friðun æðarfugls, eftir Finn Guðmundsson, og í þessu fylgiriti er lýsing á eitrun. Samkv. þeirri lýsingu finnst mér ekki aðeins um ómannúðlega aðferð að ræða gagnvart svartbaknum, heldur einnig, að veruleg hætta geti stafað af þessu eitri bæði fyrir menn og skepnur. Það er gert ráð fyrir stryknini, og þarf að gæta fyllstu varúðar við meðferð þess.
Í frv. stendur, að bannað sé að hirða svartbak, sem drepizt hafi á eitri. Nú getur svo farið, að svartbakurinn falli dauður í sjó niður, er eitrið hefur verkað, og ef hann finnst þar, þá veit enginn, hvort hann hefur drepizt af eitri eða ekki. Af þessu getur því stafað hin mesta hætta. Ég tel því ekki gerlegt að gera þetta með þeim hætti, sem frv. fer fram á, og er því fylgjandi, að sú grein verði felld niður.