17.06.1941
Sameinað þing: 20. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1287 í B-deild Alþingistíðinda. (96)
Kosning ríkisstjóra
Forsætisráðherra (HermJ) :
Samkvæmt ályktun Alþingis 10. apríl 1940 um æðsta vald í málefnum ríkisins var ráðuneyti Íslands falin meðferð þess valds, sem konungi er fengið í stjórnarskránni.
Með ályktun um sama efni frá 17. maí 1941 og lögum frá 16. júní sama ár hefur sama vald verið falið. ríkisstjóra, er Alþingi kýs.
Þér, herra Sveinn Björnsson, hafið nú verið kjörinn ríkisstjóri og undirritað lögboðið drengskaparheit að stjórnarskránni. Fyrir hönd ráðuneytis Íslands afhendi ég yður því úr höndum ráðuneytisins meðferð þess valds, er ráðuneytið hefur haft með höndum frá 10. apríl 1940.