04.06.1941
Efri deild: 71. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 472 í B-deild Alþingistíðinda. (961)

134. mál, eyðing svartbaks

Forsrh. (Hermann Jónasson) :

Ég á nú erfitt með að tala í mig jafnmikinn hita og hv. síðasti ræðumaður út af þessu máli. Það var út af fyrirspurn, sem til mín var beint, að ég vildi taka til máls. Það var spurt um, hvort það væri nokkurs staðar bannað að eitra fyrir svartbak. Það er vitanlega ráð fyrir því gert, að eitrað sé fyrir hvers konar skaðsemdarkvikindi. Í hverju apóteki er hægt að fá þessa eiturtegund. Og þess vegna er það, að hv. þm. — mig langar til að segja — veður reyk í þessu máli, því hann fer svo rangt með sem mest má verða. Og það er yfirleitt erfitt að svara þessari ræðu hans. Hér er vefengt það, sem frægustu vísindamenn segja um áhrif eitursins. Það eru vefengdar yfirlýsingar og rannsóknir um það, hvort hræin séu eitruð. Það er vefengdur undirbúningur frv., hvað mikið svartbakurinn drepi og hvað mikið hann hirði af eggjum. Og hv. þm. segir, að hann leyfi sér að efast um þetta allt. Til hvers er þá að rökræða? Ég vil benda á, að skot eru margfalt ómannúðlegri aðferð, einkanlega við fugla, sem eru jafngóðir sviffuglar. Mikill fjöldi af þeim fuglum, sem skotið er á, særist aðeins, en drepst ekki. En þessa aðferð vill n. hafa. Hv. frsm. sagði, að ef til vill gæti stafað hætta af þessu fyrir fálka og örn. En hver Íslendingur veit, að eitt af einkennum fálkans er það, að hann leggst ekki á hræ. Hann drepur sjálfur það, sem hann étur, og étur það um leið. Þess vegna hirðir hann hvorki egg né grásleppu. Hér kemur ein röksemdin enn, sem þarf engan náttúrufræðing til að sjá, að er fjarstæða ein.

Ég þykist hafa sýnt fram á, að engin rök hafa komið fram í þessu máli, sem þarf sérstaklega að taka til athugunar, heldur hafa aðeins komið fram nokkur atriði, sem byggð hafa verið á misskilningi. Og mér virðist koma greinilega fram, sem hv. frsm. sagði, að hann hefði ekki þekkingu til að leggja dóm á þetta mál. Það virðist aðallega lifa í gömlum glæðum frá 1936 um þetta mál, og gætti þess mjög í ræðu hans að efni og flutningi. Ég sé því ekki ástæðu til að svara henni frekar.