04.06.1941
Efri deild: 71. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í B-deild Alþingistíðinda. (964)

134. mál, eyðing svartbaks

Magnús Gíslason:

Umr. hafa orðið nokkuð lengri heldur en búizt var við um þetta mál, sem er í sjálfu sér mjög einfalt. Þegar ég, ásamt meðnm. mínum, afgreiddi málið á þann hátt, sem skýrt er frá í nál., þá var það ekki vegna þess, að ég áliti ekki rétt að fækka svartbaknum. Allir nm. voru sammála um, að svartbakurinn væri vargur í varplöndum og því rétt að eyða honum, þó að honum yrði ekki tortímt með öllu. Okkur datt ekki í hug að hrófla við l., sem nú gilda um þetta. Í grg. þeirri, sem fylgir frv. frá Finni Guðmundssyni, er getið um þrjár leiðir, sem réttastar þykja til að útrýma svartbaknum : í fyrsta lagi að eyða honum með skotum, í öðru lagi með eitrun og í þriðja lagi með því að eyða eggjunum. Í l., sem nú gilda, er ákvæði, sem heimilar að eyða svartbaknum með skotum, og jafnvel heitið verðlaunum fyrir hvern fugl, sem er drepinn á þann hátt. Enn fremur er öllum jarðareigendum gert að skyldu að eyða öllum þeim svartbakseggjum, sem finnast í landareign þeirra. Virðist þetta vera örugg leið til þess að fækka svartbaknum. En auðvitað vita allir, sem eru kunnugir íslenzku landslagi, að þetta er eitt af þeim ákvæðum, sem eru óframkvæmanleg, að eyða öllum svartbakseggjum, þó að þau séu á þeim stað, sem ómögulegt er að komast að þeim. Hvað snertir eyðingu með eitri, þá er ekki getið um hana í l., sem nú gilda um útrýmingu svartbaks. En eftir því, sem upplýsts hefur í umr. og staðfest var af hæstv. forsrh., þá ber að skilja l. þannig, að eitra megi fyrir svartbak að fengnu samþykki víðkomandi sýslunefndar. M. ö. o., allar þessar leiðir, sem vísindamaður þessi leggur til, að nota skuli við eyðingu svartbaks, eru nú farnar að meira eða minna leyti. Eina breytingin, sem fengist með samþykkt þessa frv., er sú, að umráðendum varplanda er gert að skyldu að eitra fyrir svartbakinn, hvort sem þeir vilja eða vilja ekki. Okkur nm. er kunnugt um, að mörgum þessum umráðendum varplanda er illa við að eitra fyrir svartbakinn í landi sínu. Okkur fannst ástæðulaust að lögbinda eitrunina og erum henni mótfallnir vegna þess, er nú skal greina. Það er fyrst og fremst mjög ómannúðleg aðferð að skjóta veiðibjölluna, og það bætir ekki úr skák að taka upp. aðra ómannúðlega aðferð. Ýmsir þekkja, að oft komast hundar í eitruð hræ, og þeir vita vel, að það er ekki mannúðleg aðferð að drepa skepnur á eitri, og þegar farið er að eitra takmarkalaust út um allar jarðir, má alltaf búast við, að það verði öðrum skepnum að fjörtjóni en ætlazt er til. Auk þess segir þessi vísindamaður, að ekki megi hirða svartbak, sem drepinn sé á eitri, og menn megi ekki einu sinni freistast til að taka af þeim vængina. Af þessum ástæðum er ég mótfallinn eitrun í svo stórum stíl.

Ég sé svo ekki ástæðu til að rökstyðja mál mitt frekar.