10.06.1941
Efri deild: 74. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 478 í B-deild Alþingistíðinda. (969)

134. mál, eyðing svartbaks

Frsm. (Ingvar Pálmason) :

Það sýndi sig við atkvgr. um þetta mál við 2. umr., að þau atriði frv., sem allshn. taldi varhugaverðust í því, hafa nægilegt fylgi til þess að ná samþykki. Þó að allshn. sé fyllilega sömu skoðunar og hún var við 2. umr. um það atriði, þá hefur hún tekið þá afstöðu, sem minni hl. ber að gera í hverju máli, að hún sætti sig við orðinn hlut, þó að hún geti ekki fylgt því, og byggir það á þeirri staðreynd, að góð mál sigra alltaf að lokum, og gerir n. því ráð fyrir, að þó að þetta verði gert að 1. nú, þá muni það í framkvæmdinni sýna sig, að þetta er slæmt mál, og þess vegna muni það ekki standa lengi frekar en það vonda, því við höfum þá trú, að það verði alltaf að láta undan því góða á endanum. En þar sem sýnt var, að málið gengi fram, þótti n. rétt að gera tilraun til lagfæringar á frv. Það hafði hún ekki gert fyrir 2. umr., vegna þess að hún hafði lagt til, að málinu yrði víkið frá með dagskrá. Nú hefur n. komið með nokkrar brtt., sem hún telur til lagfæringar, og skal ég víkja að þeim nokkrum orðum.

Það er aðeins ein brtt., sem snertir aðalmálefnið, eitrunarákvæðin í frv. Og ég ætla að minnast á það fyrst, af því að ég tel, að hinar brtt. séu þess eðlis, að engin ástæða sé fyrir flm. frv. að ganga á móti þeim, þó að þeir kynnu að ganga á móti þeirri brtt., sem snertir aðalefnið. Og vil ég þá lýsa þessari 2. brtt. fyrst. Þar gerum við ráð fyrir, að sú breyt. verði á gerð, að inn í þessa frvgr., 2. gr., verði felld þessi orð á eftir orðunum „í varplöndum“: þar sem meiri hluti viðkomandi hreppsnefndar eða bæjarstjórnar samþykkir.

Okkur finnst, að þeim, sem með eitruninni halda, ætti að nægja það, að það yrði eitrað þar, sem menn vilja gera það, þó að eitrunaraðferðinni yrði ekki þröngvað upp á menn. Og ég vil bæta því við, að ég vil með þessari brtt. og n. öll fá úr því skorið, hvort það sé virkilega meiningin með þessu frv. að þröngva eitrunaraðferðinni upp á alla, hversu mikið sem þeir kunna að vera á móti henni. Ég ætla ekki að fara fleiri orðum um þetta atriði, það skýrir sig sjálft.

Þá vík ég að hinum brtt., sem allar eru til lagfæringar á frv. Skal ég fyrst víkja að fyrstu brtt., þar sem við leggjum til, að í 1. gr. komi í staðið fyrir „tvær krónur“: ein króna, — þ. e., að verðlaun fyrir að skjóta svartbak verði færð niður í eina krónu. Og ég hygg, að ekki verði á móti því mælt, að það séu sæmileg verðlaun. Og ég vil geta þess, að þessi brtt. er flutt af tilefni, sem gafst í ræðu hv. 5. landsk. við 2. umr. Ég geri mér því fyllilega von um, að hv.

þd. fallist á þessa brtt., því að þó að menn vilji svartbaknum allt illt, finnst mér óþarfi að eyða á hann meiri peningum en þörf er.

Þá kem ég að 3. brtt., sem er svo sjálfsögð, að ég skil ekki í, að nokkrum hv. þm. detti í hug að greiða atkv. á móti henni; er hún við 3. gr. frv. Hún hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„Orðin „eða vitanlegt er, að hafa drepizt af eitri“ falli niður.“ Verður þá fyrri málsgr. 3. gr. frv., ef þetta er samþ., þannig: Bannað er að hagnýta á nokkurn hátt svartbaka, sem finnast dauðir, og skulu þeir grafnir tafarlaust, þar sem þeir finnast.

Það sjá allir, að þetta ákvæði, sem við viljum fella niður, er hégóminn einber. Hvernig á ég að vita, ef ég finn svartbak, hvort hann hafi drepizt af eitri eða ekki? Mér er það vitanlega ómögulegt. Þetta ákvæði má því til að leiðrétta. Og ég skal játa, að okkar brtt. gengur of skammt, því að í raun og veru hefði átt að banna að hirða alla ránfugla, sem finnast dauðir, og fyrirskipa að grafa þá. Því að þrátt fyrir það, þó að hæstv. forsrh. héldi því fram við 2. umr., að hrædýra, sem drepast af eitri, séu ekki hættuleg, þá hefur lagasmiðnum þótt ástæða til að leggja svo fyrir, að grafa skyldi alla svartbaka, sem vitað er, að drepizt hafi af eitri. Og það getur varðað frá 100 upp í 1000 kr. sekt að fylgja ekki þessu ákvæði. Ég tel alveg víst, að þetta ákvæði verði þannig úr garði gert frá d., að það verði einhver dálítil skynsemi í því. Því að eins og það er nú er það gagnslaust og óþarft að láta það standa. Annaðhvort á að gera þessi hræ óskaðleg eða ekki, og þá væri réttast að beita því við hræ allra rándýra, sem dauð finnast, þó við höfum ekki gengið svo langt í brtt. n.

Þá er 4. brtt., við 4. gr. Hún er að nokkru leyti afleiðing af fyrstu brtt. og að nokkru leyti leiðrétting á ákvæðum frv. og gerð með það fyrir augum, að hægt verði að framkvæma ákvæði frv. Ef 1. brtt. okkar verður samþ., þá lækka verðlaunin fyrir að drepa svartbak með skotum, og þá leggjum við til, að það verði aðeins ríkissjóður og sýslusjóðir, sem greiði verðlaunin til að byrja með, en hreppssjóðunum sé sleppt. Og að við leggjum þetta til, byggist á því, að ég sé ekki betur en að það verði afar erfitt að framkvæma það að fá þessu ákvæði fullnægt. Ef t. d. drepinn er máfur þar, sem ekkert æðarvarp er, jafnvel drepinn í stórum stíl, því að svartbakur er viða töluvert á vissum tíma árs í hreppum, þar sem ekki er um neitt varp að ræða, hvorki æðarvarp né svartbaksvarp, og af því að þetta getur orðið sæmileg atvinnugrein, að skjóta svartbak, því að fyrst og fremst er greidd eftir okkar brtt. ein kr. fyrir væng af honum, og svo þykir mér ekki ósennilegt, að það mætti fá, með því verði, sem nú er á kjöti, og líklega verður á næstunni, aðra krónu fyrir kjötið til refaeldis, þá eru allar líkur fyrir, að hreppsnefnd verði treg til að greiða sinn hluta af verðlaununum, og afleiðingin verði sú, að það reynist ókleift að innheimta þann hlutann, sem hreppurinn á að greiða, og leggjum við því til, að ríkissjóður greiði ¾ hluta af verðlaununum, en sýslusjóður ¼ hluta þeirra. Og ég held, að með þessu móti verði miklu hægara fyrir ríkissjóð að ná inn þessum hluta af verðlaununum, sérstaklega þegar þannig er um búið, sem við leggjum ekki til, að verði neitt breytt, að æðarvarpseigendur eiga að greiða eina krónu fyrir hvert hreinsað kg æðardúns, er þeim fellur næstu fimm ár eftir gildistöku þessara l., eins og í frv. getur. Þær tekjur ættu að gefa nægilegt til endurgreiðslu á framlagi sýslusjóða og ríkissjóðs. Þetta er a-liður 4. brtt. B-liður er orðabreyt., sem nauðsynleg er, ef a-liður er samþ.

Skal ég svo láta við þetta sitja, af því að ég hef ekki löngun til að tefja fyrir þessu máli, og einnig er nú orðið áliðið fundartíma.

Ég geri ráð fyrir, að 1. og 4. brtt. þurfi ekki að valda deilum, en get búizt við því, að þeim mönnum, sem fylgja eitrunaraðferðinni, þyki nokkuð skertur sinn hlutur með 2. brtt. En eins og ég sagði áðan, þá þykir mér rétt að fá úr því skorið með atkvgr., hversu fast dm. sækja hina skefjalausu eitrunaraðferð. Ég tel, að með frv. sé gengið miklu lengra í því efni en venja er til, þar sem á annað borð á að ríkja lýðræði. Ég læt við það sitja, sem ég hef sagt um þessar brtt., og mun alls ekki taka til máls frekar, þó að andmælum verði hreyft.