09.07.1941
Sameinað þing: 3. fundur, 57. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í D-deild Alþingistíðinda. (17)

1. mál, hervernd Íslands

*Þorsteinn Briem:

Ég get nú tekið undir það, sem hv. síðasti þm. sagði, að mér varð sem honum hverft við, þegar fyrsta fregnin kom um þetta mál.

Hér er breytt um utanríkisstefnu okkar frá því, sem áður hefur verið. Það er þess vegna ekki laust við, þrátt fyrir þær upplýsingar, sem komið hafa frá hæstv. ríkisstj. hér í dag, að í mér sé nokkur kviði í sambandi við þetta mál. Að ég kemst svo að orði, er ekki af því, að ég vilji neitt tala í ádeiluskyni til hæstv. ríkisstj., og við það að athuga betur þá samninga, sem hún hefur gert, betur en unnt var þegar ég heyrði þá fyrst lesna í útvarpinu, þá sé ég, að hún í ýmsum atriðum hefur haldið eins vel á okkar málum og hægt var að ætlast til. En eigi að síður er mér enn ljós munurinn á því að geta sagt; ef árekstrar verða við hið erlenda herlið: Það vorum ekki við, sem óskuðum eftir að þið kæmuð, — eða að fá hitt svarið frá hinu máttuga herveldi: Þið báðuð okkur að koma.

Það er sýnilegt, að sá aðili, sem bauð vernd sína, hefur viljað nokkuð til vinna að fá fyrirfram samþykki af hálfu Íslands. Þess vegna get ég ímyndað mér, og það er hugboð mitt, þó að um það verði vitanlega ekki dæmt nema af þeim, sem sjálfir stóðu í eldinum, að hægt hefði verið, ef til vill, að setja inn fleiri skilyrði en sett hafa verið, þó að mig vanti vitanlega upplýsingar um það, nema ríkisstj. hafi farið fram á fleiri skilyrði, en ekki fengið.

Ég ætla ekki að fara inn á þau „teóretisku“ atriði, sem aðallega hefur verið rætt um í ræðum manna hingað til í sambandi við þetta mál. Ég geri ráð fyrir, að fæstum atriðum verði um þokað, að öðru leyti en því, sem til framkvæmda kemur. Og það er einmitt í sambandi við framkvæmdir á þessum samningi, sem ég vildi, aðallega í fyrirspurnarformi til hæstv. forsrh., gera nokkrar athugasemdir.

Ég vil þá fyrst spyrja um þetta: Hefur hæstv. ríkisstj. reynt eða ætlar hún sér að reyna að gera þeim aðilum, sem herlið hafa hér á landi, það skiljanlegt, að tryggingin fyrir góðri sambúð við þá 2 aðila, sem við búum í sambýli við, er, að sem minnst samneyti verði á milli þessara aðila fram yfir það, sem er brýn nauðsyn til? Það er reynsla okkar Íslendinga gegnum margar aldir, að garður er granna sættir, og á það ekki sízt við nú meðal þeirra, sem verða að búa í sambýli. Ég legg áherzlu á, að ríkisstj. geri þeim nýja aðila, sem nú tekur aðsetur hér á landi, þessa aðstöðu okkar svo ljósa sem unnt er, því að ef sá aðili nær að skilja þetta sjónarmið okkar, þá hygg ég, að með því sé stigið stórt spor í áttina til að koma í veg fyrir þá árekstra, sem annars kynnu að verða í sambandi við sambúðina .... [Eyða í hndr.]

Á ég þar við þá merkingu, sem felst almennt í orðinu reglumaður, þar með einnig að því er snertir áfengisnautn. Ég legg þann skilning í orðið úrvalslið, að það megi ekki skipa aðrir en þeir, sem sætta sig við hinn minnsta eða engan áfengisskammt. Ég vík að þessu vegna þess, að ég hygg, að óhætt sé að segja, að við höfum nokkra reynslu í sambandi við þetta mál. Við verðum að gera verndaraðilanum það skiljanlegt, að við verðum að leggja þennan skilning í skilyrðið úrvalslið, bæði vegna okkar sjálfra og þeirra. Vegna okkar sjálfra, vegna þess að þjóð vorri stafar meiri spillingarhætta af sambýlinu, ef ekki er lögð rík áherzla á þetta atriði. Og við verðum að leggja áherzlu á það vegna verndaranna sjálfra, vegna þess að við megum búast við, að margir þeir árekstrar, sem valda úlfúð, skapist einmitt í sambandi við áfengisnautn beint og ekki síður óbeint. Ég býst við, að verndaraðilinn geti eða verði samkvæmt gefnu loforði að sætta sig við þennan skilning, fyrst og fremst vegna þess, að hann hefur lofað að valda sem minnstum truflunum meðal hinnar íslenzku þjóðar. Hann hefur lofað að haga sínum aðgerðum í samráði við íslenzku stj., og hann hefur lofað að taka tillit til þess, að við erum óvanir heraga og við mundum ekki kunna sambúðinni vel við erlent herlið, ef það hefur áfengi um hönd. Ég hygg, að ekkert geti valdið beizkari andúð gegn slíkum gestum en það, ef þjóðin verður að horfa upp á drukkna hermenn með vopn í höndum.

Annað atriði vildi ég minnast á í sambandi við þetta skilyrði um úrvalslið. að er það blóð, sem rennur í æðum gestanna, af hvaða ættstofni það lið verður. Ég vænti þess, að það þurfi ekki að gera grein fyrir því, hvers vegna okkur er það nauðsynlegt, að þeir hermenn, sem hingað koma, séu af þeim ættstofnum, sem okkur eru skyldastir, og þá helzt af hinum norrænu ættstofnum. Og vil ég þá spyrja hæstv. stj., hvort hún hafi þegar vakið athygli hins samningsaðilans á þessu atriði eða hvort hún sé ráðin í að gera það með hinni mestu áherzlu. Um leið vildi ég spyrja um, hvort hæstv. stj. hafi gert nokkrar ráðstafanir, sem kæmu í veg fyrir það áfengisflóð, sem nú streymir hér yfir landið, meðan hið erlenda setulið væri hér.

Þá vildi ég beina fyrirspurn til stj. viðvíkjandi því skilyrði, að öryggi okkar, íbúa landsins, yrði bætt sem unnt væri. Hefur stj. vakið athygli samningsaðilans á því, eða ætlar hún að gera það, að við getum ekki sætt okkur við, að hermannaskálar séu byggðir innan um bæi og þorp landsmanna sjálfra? Það er öllum ljóst, hver hætta af slíku stafar fyrir íbúana, auk þess, sem það er alls ekki hollt fyrir tvíbýlið. Hyggur ríkisstj., að hún geti komið því til leiðar, að hermannaskálar og aðsetursstaðir setuliðsins verði settir sem allra lengst frá íbúðum landsmanna, og hefur hún borið fram óskir sínar einmitt í sambandi við öryggi íbúa þeirrar borgar, sem við nú erum í? Ég get sætt mig við það orðalag, sem ríkisstj. hefur sett í sambandi við þetta. Það er ekki hægt að heimta það nákvæmara. En ég óska hins vegar upplýsinga um, hvernig ríkisstj. hefur hugsað sér að krefjast eða fara fram á, að þessu verði hagað í framkvæmd.

Þá vildi ég í sambandi við það skilyrði, sem sett er í samningnum um bætur fyrir tjón, spyrjast fyrir um það, hvort ríkisstj. geti hugsað sér að gera þá kröfu til hins samningsaðilans, að það verði hæstiréttur Íslands, sem tilnefni oddamanninn, þegar gera þarf matsgerðir að því er bætur snertir.

Enn vildi ég í sambandi við þau margháttuðu loforð, sem hinir beinu samningsaðilar og Bretar hafa gefið um að styðja hagsmuni Íslands, bera fram þá fyrirspurn og óska svars um það, hvað í þessu felst, að svo miklu leyti, sem ríkisstj. getur gefið svör um það á þessu stigi.

Ég skal ekki fara inn á þau atriði, sem 1 . þm. Borgf. drap á. Ég ætla að bíða eftir svörum við hans spurningum, en jafnframt vil ég bæta nokkrum við.

Ég vildi fyrst spyrja um það, hvort ríkisstj. hafi þegar borið fram þá kröfu til hins samningsaðilans, að hann beitti aðstöðu sinni til þess að við getum breytt því bundna fé, sem við eigum erlendis, í frjálsan gjaldeyri. Og ég vildi í því sambandi spyrja, hvort ríkisstj. hafi vakið eða hugsi sér að vekja athygli á því, hver nauðsyn okkur er á að þurfa ekki að auka seðlaútgáfuna fram úr því, sem nú er, og hver nauðsyn okkur er á því að geta tryggt seðlaútgáfuna betur og komið banka- og peningamálunum í gott horf, og hvort samningsaðilinn vilji beita aðstöðu sinni til, að þetta megi takast. Í þessu sambandi vil ég minna á löggjöf frá síðasta þingi, sem stefnir að nokkru leyti í þessa átt, þ.e. l. um gjaldeyrisvarasjóð og eftirlit með erlendum lántökum. Býst ríkisstj. við að fá notið þeirrar aðstöðu, sem henni er veitt með viðskiptasamningum, til þess að fá gjaldeyrisvarasjóði komið í frjálsan gjaldeyri?

Það mun leiða af þessum samningi, að viðskipti okkar færast að meira eða minna leyti vestur um haf. Og er þá ekki nema eðlilegt, að það verði ósk okkar, að þeim inneignum, sem við eigum erlendis, verði fyrst og fremst komið til viðskiptalandsins, sérstaklega þeim inneignum, sem ekki eru í handbæru fé. Í þessu sambandi vildi ég spyrja, hvort ríkisstj. muni treysta sér að fá samningsaðilann til að kaupa t.d. erlend skuldabréf, sem ekki munu geta talizt handbært fé eins og stendur, og hvort samningsaðilinn muni þá einnig vilja hjálpa okkur til að komast að samningum við önnur ríki um skuldajöfnuð.

Þetta eru allvíðtækar spurningar, sem ég hef lagt fram, og það er ef til vill til of mikils ætlazt að vænta þess, að fullnægjandi svör fáist við þeim, en nokkurra svara vænti ég þó.