09.07.1941
Sameinað þing: 3. fundur, 57. löggjafarþing.
Sjá dálk 40 í D-deild Alþingistíðinda. (9)
1. mál, hervernd Íslands
Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Mér þykir rétt að segja nokkur orð um þetta mál, þó að ég gæti látið mér nægja að vísa til grg. þeirrar, er hæstv. forsrh. lagði fram í upphafi máls síns. En ég vil undirstrika það, sem sagt er í orðsendingu íslenzku ríkisstj. til forseta Bandaríkjanna, að ég, sem aðrir í stj., var þess fullviss, að þessi ráðstöfun væri í samræmi við hagsmuni Íslands. Hæstv. forsrh. og atvmrh. hafa nú bent á ýmis atriði til staðfestingar því, að hagsmunir íslenzku þjóðarinnar séu í samræmi við þetta þríhyrnda samkomulag, ef svo mætti segja, þar sem Ísland, Bandaríkin og að nokkru leyti Stóra-Bretland eru samkomulagsaðilar. Og mér þykir rétt að benda enn á fjögur atriði í þessu máli, þó að minnzt hafi verið á þau áður. Fyrsta og veigamesta atriðið er það, að við höfum fengið ákveðin loforð Stóra-Bretlands og Bandaríkjanna um það, að þau muni viðurkenna sjálfstæði okkar og fullveldi, og í öðru lagi loforð þeirra um að stuðla að því að ófriðnum loknum, að Ísland verði almennt viðurkennt sem sjálfstætt og fullvalda ríki. Þetta er ekki lítils virði á tímum þegar við erum að taka öll okkar mál í eigin hendur. Þá um leið er okkur brýn nauðsyn að fá viðurkenningu stórveldanna, og þá ekki sízt hinna voldugu engilsaxnesku lýðræðisþjóða, á óskoruðu sjálfstæði okkar og fullveldi. Hér er því stigið eitt hið allra þýðingarmesta spor í sjálfstæðis- og fullveldismálum þjóðarinnar.
Við höfum á sama hátt með samkomulagi fengið fyrirheit Bandaríkjanna um, að allur herafli þeirra, bæði á landi, lofti og sjó, skuli hverfa héðan að ófriðnum loknum.
Einnig hefur verið endurtekið það fyrirheit, sem áður var gefið af hálfu brezkra stjórnarvalda, að brezki herinn skuli héðan hverfa, og það fyrr en áður var gert ráð fyrir.
Við höfum einnig í 3. lagi fengið loforð um vinsamlega samninga, sem snerta viðskiptamál okkar við þessar stórþjóðir, en vegna legu lands okkar í þessu stríði eru það þær þjóðir, sem við höfum helzt möguleika til að skipta við, en okkur er og alveg lífsnauðsyn að geta haldið áfram og aukið þau viðskipti, meðan á þessu stríði stendur.
Það er ekki lítið öryggi í því fólgið að hafa fengið slík loforð af hálfu þessara stórþjóða, einmitt á þeim tímum, þegar útlitið var nokkuð dökkt um, á hvern hátt við gætum haldið uppi nauðsynlegum viðskiptum fyrir íslenzku þjóðina við þau ríki, sem við höfum helzt aðgang að.
Í 4. lagi vildi ég nefna það, sem ég tel, að sé mjög mikilsvert eftir aðstæðum, og það er að efla hervarnirnar hér á Íslandi. Allir eru að vísu um það sammála, að þjóðin hefði helzt kosið, að til þess hefði aldrei þurft að koma, að erlendur her stigi hér á land, og við hefðum þrátt fyrir það, þó að enginn her hefði verið hér á landi, getað, eins og í síðustu heimsstyrjöld, lifað í okkar landi, óáreittir af öllum hvað snertir hernaðaraðgerðir. En það er staðreynd, sem ekki þýðir að ganga fram hjá, að hingað til landsins er kominn her, og hér verður skilyrðislaust her, meðan á styrjöldinni stendur, frá einhverjum aðila. Og ef við höfum her, okkur til varnar, þá er það ekkí lítils virði, að í því liggi verulegar varnir fyrir íslenzku þjóðina, því að það er að sjálfsögðu gefið, að eftir því sem heraflinn er sterkari, þeim mun minni líkur eru til þess, að á okkur verði ráðizt af öðrum hernaðaraðilum og að Ísland yrði beinlínis hernaðarvettvangur.
Þessi atriði vildi ég aðeins undirstrika og endurtaka það, að frá sjónarhóli okkar í ríkisstjórninni var það fyrst og fremst hagsmunamál Íslands, að þetta samkomulag yrði gert, án tillits til þess, hvort það væri þessum eða hinum aðilanum hentara eða ekki.
Og hver sú þjóð, sem heyir sína lífsbaráttu á þessum tímum, þarf að gæta þess vandlega að haga stjórnmálastarfsemi sinni og aðgerðum sínum á þá leið, sem er fyrst og fremst til hagsbóta fyrir sjálfa þjóðina.
Þess vegna er frá sjónarhóli allra, er ábyrgðartilfinningu hafa, það afgerandi fyrir ákvarðanir um þetta efni, hvort það sé hagsmunamál íslenzku þjóðarinnar. Hitt kemur væntanlega hjá öllum, eða a.m.k. flestum, í annarri röð, hvort hagsmunir íslenzku þjóðarinnar falli sérstaklega meira saman við hagsmuni annars stríðsaðilans eða ekki.
Þá vil ég að lokum minnast á það atriði, sem komið hefur dálítið fram í umr., hvort þetta samkomulag, sem gert hefur verið, sé brot á okkar yfirlýsta hlutleysi, og hvort við höfum með samkomulaginu vikið frá þeirri hlutleysisstefnu, sem við höfum hingað til reynt að fylgja eftir því, sem kostur hefur verið á.
Eins og líka kom fram í þessari umr., er það svo, að hlutleysishugtakið, ef svo mætti segja, er orðið nokkuð ruglað á þessum tímum. Það hlutleysi, sem áður var talið gilda, er nú orðið á nokkuð aðra lund, eftir þá atburði, sem skeð hafa í heiminum á síðustu tímum. Það má í raun og veru óendanlega um það deila, hvort þessi eða hinn verknaðurinn sé brot á hlutleysi. En aftur á móti má ekki um hitt deila, að afkoma íslenzku þjóðarinnar er ofar öllum hlutleysisyfirlýsingum. Þó að það hafi verið rétt og eðlilegt, eins og á stóð, bæði fyrir ófriðinn og í byrjun ófriðarins, að íslenzka þjóðin fylgdi ákveðið yfirlýstri hlutleysisstefnu, sem var meira að segja orðin í samræmi á öllum Norðurlöndunum, með samþykki hinna 5 ríkja, þá er það svo, að það hefur margt skeð í viðburðum síðustu ára, sem hefur gert það að verkum, að reglan getur ekki staðið eins og hún var áður.
Þá er hitt, sem frá mínu sjónarmiði er aðalatriðið, að þó að það sé hagkvæmt á einhverri ákveðinni stundu að fylgja strangri hlutleysisstefnu, þá vil ég segja það fyrir mitt leyti, að það er einhver sú hættulegasta stefna í stjórnmálum að fylgja þannig aðeins eftir í blindni beinni línu, án þess að líta í kringum sig, hvort aðstæðurnar séu svipaðar og áður, þegar línan var mörkuð. Þess vegna vil ég segja það, að þó að það hafi verið rétt og sjálfsagt að fylgja strangri hlutleysisstefnu fyrir ófriðinn og í byrjun hans, þá þarf það ekki að vera í samræmi við hagsmuni íslenzku þjóðarinnar að fylgja nákvæmlega sömu stefnu, hvað sem á gengur og hvað sem skeður í heiminum.
Frá því að yfirstandandi styrjöld hófst, hefur margt umturnazt og gengið úr skorðum, og Ísland verður að taka tillit til allra aðstæðna og marka þannig afstöðu sína, sem getur vel orðið breytileg, eftir því sem aðstæðurnar breytast. Eftir minni skoðun getur því sú hlutleysisstefna, sem okkur var áður hagkvæmt að fylgja, nú orðið ísl. þjóðinni til óheilla.
Þetta vildi ég taka fram um þetta atriði, án þess að svara því fyrir mitt leyti, hvort það sé nokkurt brot á yfirlýstri hlutleysisstefnu ísl. þjóðarinnar, það samkomulag, sem ríkisstjórnin hefur nú gert. Ég hygg líka, að því sé nokkuð vandsvarað, hvort hér sé um brot á áður lýstri stefnu að r æða, vegna þess að hugtakið hlutleysi er breytilegt og mótast af þeim tímum, sem yfir standa.
Af þessari ástæðu varð ég ekkert hikandi fyrir mitt leyti, eftir að ríkisstjórnin var búin að athuga allar hliðar málsins, að vera með því, að þetta samkomulag yrði gert. Mín afstaða til málsins, eins og annarra í ríkisstjórninni, byggist á þessu:
Það eru hagsmunir ísl. þjóðarinnar, sem um er að ræða, en ekki hagsmunir neins ákveðins stríðsaðila.
Þetta bið ég menn vel að hafa í huga, þó að mönnum kunni að vera það misjafnlega ljúft að gera eitt eða annað, eftir því hvort það er til hagsmuna fyrir þennan stríðsaðilann eða hinn. Og það er eðlilegt, eftir því hvaða skoðun menn hafa á alheimsstjórnmálum, að mönnum sé mismunandi geðþekkt, að athafnir ísl. framkvæmdarvalda séu frekar til framdráttar þessum stríðsaðila eða hinum. En það verður að víkja fyrir því, sem okkur er fyrst og fremst trúað fyrir, og það eru hagsmunir íslenzku þjóðarinnar. Og með öruggri vissu um það, að þetta samkomulag sé til heilla fyrir ísl. þjóðina, þá er ég eindregið með því og hef ásámt starfsbræðrum mínum í ríkisstjórninni lagt til, að þetta samkomulag verði samþykk af hinu háa Alþingi.