29.10.1941
Neðri deild: 8. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (101)

4. mál, húsaleiga

Sigurður Kristjánsson:

Ég ætla ekki að fara verulega inn á efni þessa frv. Ég geri ráð fyrir, að sú n., sem fær það til meðferðar, muni rannsaka málið. En ég get ekki annað en látið í ljós þá skoðun mína, að það er mesta vandræðamál að þurfa að taka að svona verulegu leyti af mönnum umráðaréttinn yfir eignum þeirra eins og gert er hér. Ég er hræddur um, að það sé rétt ályktað hjá einum hv. þm., sem talað hefur í þessu máli, að þetta getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir byggingar í kaupstöðum. Það er ákaflega óálitlegt að fara að koma hér upp húsum, eins dýrt og það er nú, og eiga svo víst að fá litlu eða engu að ráða um meðferð þessarar eignar sinnar, en ég ætla ekki að fara nánar út í það að þessu sinni. Þegar ég kvaddi mér hljóðs, var það aðallega til þess að benda þeirri n., sem væntanlega fær þetta mál til meðferðar, á það að ekkert yfirskot er til, í þessum málum. Nú er það regla í þjóðfélaginu, þar sem dæmt er um ágreining manna milli, að þá sé fleira en eitt stig dóma um það. Utan Reykjavíkur eru þessi mál falin fasteignamatsn., og þar er áreiðanlega víða ágreiningur, og getur það orðið mjög vandasamt fyrir n. Er þá ótækt að geta ekki skotið málum sínum til neins yfirdóms. Nú væri það að ýmsu leyti vel til fallið, að ágreiningi í slíkum málum utan Reykjavíkur mætti skjóta til n. í Reykjavík, en mér skilst, að hún sé ákaflega hlaðin störfum, af því að ágreiningsmálin koma fyrir á tiltölulega stuttu tímabili, og þá hleðst svo mikið á n., að hún getur ekki afgr. málin nægilega fljótt. Ef eitthvert yfirskot á að vera,

verður líklega að setja einhverja yfirn., sem öllum ágreiningi í og utan Reykjavíkur mætti skjóta til. Þetta vildi ég láta skoða fyrst og fremst sem bendingu til n., en ef hún sér ekki ástæðu til að gera breyt. í þessu efni, þá geri ég ráð fyrir, að ég komi með brtt. í þessa átt.