17.11.1941
Neðri deild: 21. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í B-deild Alþingistíðinda. (124)

4. mál, húsaleiga

Sveinbjörn Högnason:

Ég flutti við 2. umr. brtt. á þskj. 43, og þó að ég léti það eftir hv. frsm. allshn. að geyma hana, vissi ég fyrir, að útkoman mundi verða sú, sem hann lýsti, að þeir í n. mundu ekki geta komið sér saman um hana. Hv. þm. sagði, að þó að till. kynni að vera til bóta, byggist hann ekki við, að hún gæti haft áhrif fyrr en um næsta flutningsdag, sem mun vera í vor. Þetta er mesti misskilningur. Hér er mikið húsnæði, sem er notað til annars en íbúðar og leigt út með þriggja mánaða uppsagnarfresti, sem er ekki bundinn við flutningsdag. Þetta á við um flest það húsnæði, sem er notað til iðnaðar, verzlunar og þvílíkra hluta, og þar kemur flutningsdagur ekki málinu við. Það er ekki minni ástæða til, eins og ég sagði við 2. umr., að athuga, hvernig fer um þetta húsnæði, því að miklu af því er sagt upp til algerlega óþarfrar notkunar, t. d. í sambandi við brezka herliðið. Það er stundum svo, að mönnum er gert ómögulegt að halda slíku húsnæði nema því aðeins, að þeir greiði húseigendum stórfé að launum. Þetta á sér stað í stórum stíl hér í bæ. Það þarf að verða eins óheimilt að segja upp þessu húsnæði og öðru, nema það eigi að nota til eigin íbúðar. Ég vænti þess því, að hv. d. skilji, að þessi till. þarf að ná fram að ganga.

Þá er önnur brtt., sem ég er við riðinn ásamt hv. þm. V.-Sk. Hún er á þskj. 46. Hv. 1. flm., sem er þm. V.-Sk., ætlaði að mæla fyrir henni sjálfur, en ég sé, að hann er ekki staddur hér í hv. d. Ég ætla því að segja nokkur orð um till., þó að hún þurfi ekki langra útskýringa við. Í till. er farið fram á það, að stofnað sé nýtt dómstig, það er yfirhúsaleigunefnd, en nú eru hinar venjulegu húsaleigun., eins og kunnugt er, algerlega einráðar. Eftir því sem hæstv. félmrh. lét hér orð falla, eru þær ekki einu sinni bundnar við 1., t. d. um það, hvenær sagt skuli upp húsnæði. Þessar n. eru svo einvaldar, að ekki er við hlítandi, og verður því að telja hina mestu nauðsyn á því, að til sé dómstig yfir þeim, þegar þess er gætt, að hér er um að ræða mál, sem snertir flesta borgara landsins. Þess vegna höfum við lagt til, að skipuð sé þessi yfirhúsaleigun. Við ætlumst til, að í henni eigi sæti fimm menn, og séu þrír þeirra skipaðir af ríkisstj., en tveir af hæstarétti, og annar þeirra skal vera lögfræðingur og formaður nefndarinnar. Ríkisstj. skal setja n. starfsreglur, og kostnaður skal greiðast úr ríkissjóði. Teljum við, að ekki beri að horfa í það, þótt þetta kosti nokkrar krónur.