19.11.1941
Efri deild: 22. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í B-deild Alþingistíðinda. (143)

4. mál, húsaleiga

Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Ég þarf ekki að tala langt mál um þetta frv. Ég get lýst yfir því, að ég er samþykkur brtt. á þskj. 67 og get í þessu sambandi látið mér nægja að vísa til skýringa þeirra, sem fram hafa komið hjá allshnm. um till. hv. 2. og 11. landsk. En ég vil aðeins taka fram um 1. brtt. á þskj. 67 og ég tel það engum vafa undirorpið, að eins og 1. um húsaleigu eru nú, er heimilt að skjóta til dómstólanna úrskurði húsaleigunefndar um ágreiningsatriði, sem hana varðar. Þetta er beinlínis tekið fram í niðurlagi 6. gr. húsaleigul., þar sem segir, að húsaleigunefnd úrskurði ágreiningsmál út af uppsögn á húsnæði og megi skjóta úrskurði hennar til dómstólanna. Mér er sagt, að því sé haldið fram, að fógetaréttur teldi sig bundinn við úrskurð húsaleigunefndar, en ég get ekki séð, að það fái staðizt, og ég tel, að dómstóll geti úrskurðað um það eftir l. eins og þau liggja nú fyrir. Ég get ekki sagt með vissu, hvort dómur hafi gengið í hæstarétti um þetta atriði, en það virðist svo sem dómstólarnir geti breytt úrskurði húsaleigunefndar. Er því næsta einkennilegt að hafa í þessum málum 4 dómstig, í staðinn fyrir að dómstig í almennum málum eru aðeins tvö, undirréttur og hæstiréttur. En hér dæmir fyrst húsaleigunefnd, þá héraðsdómur, fógetaréttur og loks hæstiréttur. Þó að þessi mál kunni að vera vandasöm, virðist undarlegt að hafa fleiri dómstig í þessum málum heldur en öðrum. Af þessum ástæðum er brtt. allshn. fullkomlega á rökum reist.

Ég get ekki verið sammála brtt. á þskj. 60, frá hv. 11. landsk. þm., og liggja til þess ýmsar ástæður. Ég tel óeðlilegt að taka nýbyggingar undir ákvæði hinna almennu húsaleigul. Í fyrsta lagi virðist engin ástæða til að láta utanhéraðsmenn sitja fyrir bæjarmönnum, þegar um ný hús er að ræða, meðan húsnæðisvandræðin eru svo mikil í bæjum og kaupstöðum. Í öðru lagi eru ákvæði húsaleigul. um að halda húsaleigunni niðri ein af þeim öryggisríku dýrtíðarráðstöfunum, sem gerðar hafa verið hér á landi. Ef þau væru ekki látin ná til nýbygginga, má búast við, að leigan í þessum húsum fari upp úr öllu valdi, og þá væri næsta óeðlilegt, ef löggjöfin leyfði slíkt. Nú hafa margir menn miklar tekjur, og ef þeir í slíkum húsnæðisvandræðum ættu kost á nýjum húsum, mundu þeir í vandræðum sínum ekki sjá í skildinginn og gangast inn á að greiða háa húsaleigu, þar sem slík viðskipti væru ekki lögbundin.

Þá má í þriðja lagi benda á, að hægt væri í „spekulations“ — augnamiði að láta ný hús standi auð um langt skeið, án þess að nokkur geti að gert, og virðist það vera óeðlilegt, þegar fjölda manns skortir húsnæði.

Í fjórða lagi: Þegar búið væri að koma upp slíkum íbúðum, mætti breyta þeim í búðir, ef umráð manna yfir þeim væru frjáls og óháð. Grundvallarástæða hv. 11. landsk. þm. fyrir þessari till. var sú, að húsaleigul. væru fjötur um fót einstakra manna til að byggja ný hús, og væri varla hægt að búast við byggingum, ef ný hús féllu undir ákvæði húsaleigulaganna. En reynslan sýnir, að þrátt fyrir gildandi ákvæði um húsaleigu, þá er byggt meira í Rvík nú heldur en nokkurn tíma áður hefur verið gert. Þetta sýnir, að menn eru óhræddir við að byggja, þó að húsaleigul. séu í gildi, enda hef ég ekki orðið var við nokkrar umkvartanir frá eigendum nýrra húsa út af leigumati húsaleigunefndar. Ég hygg, að n. sýni mikla sanngirni í þessum málum, og hafði ég í viðtali við hana fyrir ári síðan minnzt á, að þess þyrfti að gæta, að eigendur nýrra húsa töpuðu ekki á þeim. Hefur þessa atriðis verið fullkomlega gætt af nefndinni. Fyrir þessar sakir hlýt ég að mæla gegn brtt. hv. 11. landsk. þm., en með brtt. hv, allshn. á þskj. 67.