19.11.1941
Efri deild: 22. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í B-deild Alþingistíðinda. (144)

4. mál, húsaleiga

Brynjólfur Bjarnason:

Ég hygg, að hv. Nd. hafi vitað vel, hvað hún var að gera, þegar hún samþ. breyt. á brbl., sem felast í 4. gr. frv. eins og það er á þskj. 50. En þar segir, að skjóta megi úrskurði húsaleigunefndar til yfirhúsaleigunefndar. Ég held, að þær brtt. allshn., sem eru um þetta ákvæði, séu ekki til bóta. Það hefur komið fram ágreiningur um, hvernig skilja beri ákvæði 4. gr. húsaleigul., hvort skjóta megi til dómstólanna, þegar um er að ræða ágreining um uppsögn á húsnæði eða því um líkt og fógetaréttur hefur ekki talið sig hafa rétt til að breyta ákvæðum húsaleigunefndar. Skv. þessu ákvæði er mælt svo fyrir, að skjóta megi slíkum ágreiningi til dómstólanna, en hlíta verður honum, unz dómur er fallinn. M. ö. o.: úrskurður húsaleigunefndar á að gilda og honum verður að hlíta, þar til dómur er fallinn fyrir dómstóli hæstaréttar. Nú getur slíkur málarekstur orðið ærið tafsamur, og þegar dómur loks fellur, getur farið svo, að hann yrði lítils virði fyrir þá, sem þar reka réttar síns. Þess vegna álít ég, að það sé nauðsynleg trygging, sem sett var inn í l. af hv. Nd., og mun því standa á móti brtt. hv. allshn. á þskj. 67.