14.10.1941
Efri deild: 1. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (17)

Sætaskipun

Forseti (EÁrna) :

Þá vil ég leggja til, að sætaskipun verði hin sama og var á síðasta aðalþingi. Til þess að sú tillaga megi koma til atkvæða, verður að veita afbrigði frá þingsköpum, og vil ég spyrja hæstv. stjórn, hvort hún leyfi þau afbrigði. — Afbrigðin eru leyfð, og ber ég þá undir hv. deild, hvort hún samþykki þau.