04.11.1941
Neðri deild: 14. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í B-deild Alþingistíðinda. (172)

15. mál, krónuseðlar

Fjmrh. (Jakob Möller) :

Eins og kunnugt er, hefur undanfarið verið nokkur skortur á skiptimynt í landinu, en þó hefur verið hægt að komast af með þá skiptimynt, sem fengizt hefur frá Englandi. Nú á ríkisstj. von á talsverðum birgðum af skiptimynt, og er smærri myntin væntanleg mjög bráðlega, en stærri myntin í næsta mánuði.

Nú er í ráði að greiða Bandaríkjahernum kaup sitt í ísl. mynt, um miðjan þennan mánuð, en hingað til hefur honum verið greitt í amerískri mynt. Er því nauðsynlegt að bæta úr skorti á skiptimynt með því að gefa út til bráðabirgða 1 kr. seðla. Hins vegar er ekki ætlunin, að þeir verði áframhaldandi í umferð, heldur verði þeir dregnir út jafnskjótt og unnt er að afla nægilegrar málmskiptimyntar.

Mál þetta er þannig vaxið, að ástæðulaust er að vísa því til n., og vænti ég, að því verði hraðað áfram svo sem unnt er, og helzt að það fái afgreiðslu í dag.