19.11.1941
Efri deild: 21. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 106 í B-deild Alþingistíðinda. (275)
19. mál, rithöfundaréttur og prentréttur
Fjmrh. (Jakob Möller) :
Það er í rauninni aðeins sem þm. í hv. Nd., sem mér fannst ég verða að kveðja mér hljóðs fyrir hönd d., vegna óviðurkvæmilegra orða hv. 1. þm. Reykv. út af afgreiðslu d. á þessu máli. Og því óviðurkvæmilegri voru þessi ummæli, að það virðist sem hv. þm. hafi ekki lesið frv., sem fyrir liggur.
Ég veit ekki til þess og sé ekki í þessu frv., að með því sé bannað að gefa út fornritin með nútímastafsetningu. En mér skilst, að það sé út af þessu banni, sem þessi taugaóstyrkur hefur gripið hv. þm. þessarar d. Það, sem í frv. þessu stendur, er að vísu það, að ríkisstj. einni sé heimilt að gefa út íslenzk fornrit eða veita öðrum leyfi til þess. En það stendur hvergi í þessu frv., að bannað sé að gefa fornritin út með nútímastafsetningu.
Það er alveg rétt, sem hv. 9. landsk. sagði, að það, sem kemur þessu af stað, er fyrirhuguð útgáfa á Laxdælu, sem þessi ágæti þm. gerði að umtali og var kannske á misskilningi byggt, eins og hann sjálfur sagði. En það er ekki af ótta við, að þau verði gefin út á íslenzku, heldur af því, að þau verði gefin út á „Laxnessku“, og það var einmitt það, sem þessi hv. þm. óttaðist, þegar hann skrifaði um þetta í „Vísi“.
Með þessu frv. er bara verið að girða fyrir að umskrifa fornritin á eitthvert mál annað en íslenzku. Hvort þau eigi að vera með nútíma- eða fornri stafsetningu, sé ég ekki, að frv. sé um. Það heimilar ríkisstj. að setja það skilyrði; að á þeim sé samræmd stafsetning forn, en það er enginn áskilnaður um, að svo sé gert. En með þessu á að vera tryggt, að fornritin verði ekki afbökuð í gróðaskyni. Og það á ég bágt með að skilja, að ástæðan fyrir þessum ádeilum í garð hv. Nd. skuli vera sú, að hún er að reyna að koma í veg fyrir, að afbakanir á fornritunum geti átt sér stað.
Ég held, við nánari athugun málsins, að það liggi opið fyrir, að hv. Ed. láti málið ganga þinglega áfram og sendi það til n. Ef ástæða er til að búa betur um það, þá er það að sjálfsögðu vel farið, og við skulum vona, að það takist.
Að lokum vil ég segja það, að Nd. hefur ekki dengt þessu máli yfir þessa hv. d., eins og hv. 1. þm. Reykv. vildi vera láta. Nd. afgreiddi málið eins fljótt og hún gat. Að það var á síðustu dögum þingsins, er ekki henni að kenna. Það atvikaðist bara þannig. Og það verður að fara eftir atvikum þessarar hv. d., hvort það verður afgr. áfram.