03.11.1941
Neðri deild: 11. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í C-deild Alþingistíðinda. (359)
7. mál, ráðstafanir gegn dýrtíðinni
Viðskmrh. (Eysteinn Jónsson) :
Ég stend hér upp fyrst og fremst til þess að víkja lítils háttar að orðum hv. 3. landsk., en áður en ég geri það, þá get ég ekki stillt mig um að minnast nokkrum orðum á ummæli hv. síðasta ræðumanns. Hann sagði, að ekki væri furða, þótt ályktanir kæmu um þetta mál frá þeim félögum, sem fyndust þau vera rangsleitni beitt, og þar mun hann hafa átt við ályktanir, er komið hafa frá verkalýðsfélögum. Hv. þm. veit, að öll þau mótmæli, er borizt hafa, hafa komið samkv. pöntun. Svo óðslega létu menn sér í þessu, að tekið var trúnaðarskjal fyrr en heimilt var, og þetta skjal svo sent til verkalýðsfélaga víðs vegar um landið, og því fylgdi svo grg., sem sendendurnir sömdu eftir eigin geðþótta. Þannig eru nú vinnubrögðin, og þetta er nú aðalafrekið, sem hv. þm. Seyðf. getur stært sig af í dýrtíðarmálunum. Það er því augljóst, að það er aðeins af pólitískum ótta, sem þessi hv. þm. og hans flokkur fylgir ekki málinu. Þeir hafa áður verið með því að lögbinda kaupgjald, — það var árið 1939. Þá var hægt að tala um fórnir, en hér er ekki farið fram á neinar fórnir, og ég skil ekki, hvernig hv. þm. Seyðf. getur kallað þetta rangsleitni. Hér er gert ráð fyrir að reyna að halda dýrtíðinni niðri með sameiginlegu átaki allrar þjóðarinnar. Nú er hv. þm. að reyna að gera sig að miklum forsvarsmanni verklýðsins og talar um það sem hreina goðgá að lögbinda kaupið, en hann ætti aðeins að svipast um aftur til ársins 1939 og athuga, hvað það var, sem hann vildi þá. Svo talar hv. þm. um, að þetta frv. sé árás á einstakar stéttir. Hvaða rök getur hann fært fyrir því? Þá er það broslegt, að hv. þm. og aðrir mótstöðumenn málsins telja hina svo nefndu „frjálsu leið“ rétta, og þó stefnir hún að einu og sama marki og sú leið, sem felst í þessu frv. Við göngum inn á, að hækkun erlendra vara komi jafnt alla landsmenn, allar stéttir þjóðfélagsins, og svo er hv. þm. að breiða sig út um hið hróplega ranglæti í öðru orðinu, en í hinu er talað um, að grunnkaup eigi að standa í stað.
Þá vil ég víkja nokkrum orðum að því, sem hv. þm. Seyðf. sagði um tekjur bændastéttarinnar. — Hann spyr, hvar fyrir liggi skýrslur um tekjuþörf eða verðþörf bændanna. — En ég vil spyrja: Hvar eru yfirleitt til skýrslur um kaupþörf verkamanna? Eru það tekjur bænda einna, sem eiga að byggjast á slíkum skýrslum? Eiga þær skýrslur að vera til þess að fyrirbyggja það, að bændur geti nokkru sinni notið hærri tekna en þeir þurfa til þess að draga fram lífið? Treysta hv. fulltrúar þjóðarinnar hér á Alþ. sér ekki til þess að fylgja þessu frv. af því, að hér sé farið fram á að lögfesta of hátt verð á landbúnaðarvörum? Hvers vegna fara menn ekki upp í sveitirnar, ef gróðinn er svo mikill þar sem hv. þm. Seyðf. virðist halda? Ekki ber samt á því, að straumur fólks úr sveitunum í kaupstaðina minnki, heldur virðist hann aukast einmitt núna, og ekki bendir það til þess, að betra sé að lifa í sveitunum heldur en í kaupstöðunum. Heldur hv. þm., að mögulegt sé að binda bændurna við jarðirnar? Ef hv. þm. vill enn halda sér við það, að tekjur bændastéttarinnar séu of háar, þá þætti mér vænt um, að hann vildi skýra það fyrir mér, hvers vegna straumurinn úr sveitum í kaupstaði eykst í stað þess, að minnka, eins og hann ætti að gera, ef eitthvað væri til í því, sem hann segir. Það ber ekki vott um skilning á því vandamáli, sem fyrir liggur, að vera að metast um tekjur bænda og verkamanna. Þessar stéttir hafa haft frjálsar hendur undanfarið, og tekjur þeirra hafa batnað, en nú er eina ráðið að festa allt verðlag og kaupgjald, því að þá fyrst er einhver von um að stöðva dýrtíðina.
Þá sagði hv. þm. Seyðf., að sér fyndist gæta mikillar óskammfeilni hjá framsóknarmönnum, þar sem þeir bæru öðrum á brýn einsýni, en væru sjálfir einsýnir og jafnvel alveg staurblindir. Mér skildist, að hv. þm. ætti með þessum ummælum við þetta frv. og að lausnin, sem þar er um að ræða, væri einhliða. Ég vil leggja áherzlu á, að frv. þetta er ekki einhliða, heldur þvert á móti. Þar er lagt til, að jafnt gangi yfir alla og almannafé notað til þess að halda niðri dýrtíðinni að því leyti, sem verðfesting innlendra vara og kaupbinding dugir ekki til þess að stöðva dýrtíðina. Þetta kallar hv. þm. einhliða, en hann kallar ekki þeirra eigin till., Alþfl. frv., einhliða, sem stefna að því að binda verð á afurðum bændanna, en láta allt kaupgjald í landinu óbundið. Pólitíska valdið á eftir hans kenningum að segja til um afurðaverð bændastéttarinnar, en verkalýðurinn má gera hvað sem honum þóknast. Er þetta fyrirmyndin, sem hv. þm. berst fyrir? Eru það þessar tillögur, sem gefa honum rétt til þess að ásaka mig um blindu og jafnvel rangsleitni? Er þetta hin alhliða og réttláta lausn á dýrtíðarmálunum?
Ég sé svo ekki ástæðu til að víkja frekar að ræðu hv. þm. Seyðf. Ég stóð upp í þeim tilgangi aðallega. að minnast nokkrum orðum á brtt. hv. 3. landsk. Hann bendir á það, að landbúnaðinum sé hætta búin, ef þetta frv. verður samþ., vegna þess, að svo geti farið, að fólk fáist ekki fyrir það kaupgjald, sem leyft sé að borga. Ég veit ekki, hvort hv. þm. hefur athugað, að líku má halda fram um aðrar atvinnugreinar, bæði iðnað, sjávarútveg o. s. frv. Út af þessu vil ég minna á það, sem ég hef haldið fram, að þetta frv. standist ekki í framkvæmd, nema gerðar séu ráðstafanir til þess að skapa nokkurn veginn jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar á vinnuafli í landinu; og sama máli gegnir um „frjálsu leiðina“. Þetta verður að framkvæmast fyrst og fremst með því að takmarka hið íslenzka vinnuafl, sem erlenda setuliðið hefur hér í sinni þjónustu. Þeir, sem þar ráða fyrir, munu skilja það vel, að þjóðin má ekki við því að missa vinnuafl sitt í þágu erlends setuliðs, nema mjög takmarkað. Hins vegar skal ég taka það fram út af niðurlagi 2. gr., sem hv. 3. landsk. minntist á, að við, sem að frv. stöndum, íhuguðum gaumgæfilega, hvort þessi málsgr. skyldi tekin í frv. Okkur fannst hún alltaf of einstrengingsleg, af því að jafnvel þó jafnvægi væri fyrir hendi í þessum málum, þá væri erfitt að hnitmiða kaup í kaupavinnu í sveitum t. d. Okkur fannst þó rétt að hafa þetta ákvæði í frv. Ætluðum okkur að endurskoða það við meðferð málsins.
Þeir hv. þm. A.-Húnv. og hv. 3. landsk. hafa í sambandi við þetta ákvæði verið að tala um, að ég hefði lítið verið við búskap, — væri þeim málum ókunnugur, og þar mundi liggja skýringin á þessu ákvæði. — Sei, sei. — Hvað sem um mína þekkingu á búskap er að segja, þá get ég sagt hv. þm. það, að þetta ákvæði var sett á flot með frv. með ráði þeirra manna, sem ekki hafa minna fengizt við búskap en þeir. –Annars á ég erfitt með að sjá, hvað þetta kemur búskaparþekkingu við.
En ég get vel fallizt á að athuga, hvort óhætt mundi að fella þessa málsgr. niður og treysta á, að kaupgjald í lausavinnu lagi sig eftir kaupgjaldi í landinu, og sé þetta gert, þá eru þessi l. hvað þetta atriði snertir byggð á sama grundvelli og kaupbindingarl. frá 1939. Ég sé þó ekki ástæðu til að breyta þessu, nema ég viti, að það geti haft þýðingu fyrir afstöðu þm. til málsins.
Hv. 3. landsk. segist þó jafnvel ekki geta fallizt á að fylgja þessu frv., þótt þessu atriði væri breytt. Finnst mér það mjög óeðlilegt eftir því, sem hann tekur í málið að öðru leyti.
Að lokum vil ég benda á enn eitt atriði í þessu máli, út af þeim umr., sem hér hafa átt sér stað. Ýmsir hv. þm., sem eru á móti þessu frv., hafa talað um nauðsyn þess að takmarka þátttöku Íslendinga í Bretavinnu. Mér finnst ekki ástæða til þess að vera allt of bjartsýnn eða vongóður um það, að samkomulag náist um það við þá flokka, sem eru á móti frv., að takmarka tölu Íslendinga í þeirri vinnu. Það eru hins vegar ákaflega miklu meiri líkur fyrir því, að þátttaka Íslendinga í Bretavinnu yrði hæfilega takmörkuð, ef frv. yrði samþ., því þá yrðu menn bókstaflega að keppa að því, að framleiðendur innlendra vara gætu framleitt áfram án þess að greiða verulegum mun hærra kaup en greitt er nú í landinu. Menn gætu þá ekki farið þá leiðina að hækka kaupgjaldið og verðlagið, og takmörkunin yrði knúin fram.
Verði þetta frv. ekki samþ., er hætt við, að menn hugsi fremur sem svo : Það er alltaf hægt að yfirbjóða Bretavinnuna og hækka verðlagið, og þá er ég ákaflega hræddur um, að erfitt muni verða að fá menn til þess að sinna því máli svo sem þörf er fyrir. Þetta tek ég hér fram til athugunar fyrir þá menn, sem sjá nauðsyn þess að takmarka vinnu Íslendinga hjá Bretum.