04.11.1941
Neðri deild: 12. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í C-deild Alþingistíðinda. (363)
7. mál, ráðstafanir gegn dýrtíðinni
Haraldur Guðmundsson:
Ég get ekki alveg látið vera að víkja nokkrum orðum að hv. síðasta ræðumanni, hv. 1. þm. Rang., þó að það sé óþarft með tilliti til þess, að hann kom ekki nærri kjarna málsins, sem hér liggur fyrir, og að ákaflega litlu leyti nálægt nokkrum atriðum í minni ræðu.
Hv. 1. þm. Rang. sakaði mig um að hafa flutt hér upphrópanir eins og ég væri á þingmálafundi. Ég get ekki neitað því, að ég tala hér í hv. d. oft eins og á þingmálafundi, því að ég álít, að það eigi að tala við fólk flest eins og hv. þm., þó að hv. 1. þm. Rang. móðgaðist af því, að ég talaði við hv. þm. eins og fólk úti um land.
Þá sagði þessi hv. þm., að sumt í minni ræðu hefði vakið hjá sér mjög einkennilegar kenndir. Ég verð þá að segja það, að mín ræða hefur haft áhrifjafnvel á þeim stöðum, sem ég bjóst sízt við. Ég hélt, að þessi hv. þm. væri svo forstokkaður, að ekki væri hægt að hafa áhrif á hann. En þó held ég, að það sé of mikil bjartsýni að gera sér von um afturhvarf hjá honum.
Um það, að hv. 4. þm. Reykv. hafi beitt meiri röksemdum í sinni ræðu og komið nær frv, en ég, skal ég ekki deila. Hv. þm. verður að meta það eins og honum sýnist. Annars furðar mig ekki á þessar í skoðun hv. þm. Ég býst við, að hann og hv. 4. þm. Reykv. eigi margt sameiginlegt, og er ekki nema þakkarverð sú einlægni hv. þm. að viðurkenna það.
Það er rétt hjá hv. þm., að ég tel, að með samþykkt frv. sé unnið gegn hagsmunum verkamanna, en hins vegar sýnd viðleitni til að draga taum bænda. En hv. þm. segir, að hér sé mikill kross lagður á bændur. Ég vil ekki fullyrða, að það sé ekki rétt, að bændur gætu sett vörur sínar í enn hærra verð, ef engin ákvæði væru í 1. gegn slíku, en hitt er annað mál, hvort skynsamlegt væri að gera það. En hitt er líka víst, að verklýðsfélögin hefðu getað hækkað sitt kaupgjald, ef þau hefðu talið rétt gagnvart þjóðfélagsheildinni að gera það. Skilningur stéttanna á nauðsyn þjóðfélagsins er misjafn. Verkalýðurinn hefur ekki knúið fram hækkun á sínu kaupi, en miklar hækkanir hafa orðið á afurðum bænda, án þess að sýnt væri, að til þess lægju eðlilegar orsakir. Hv. 1. þm. Rang. segir, að ekki sé rétt að bera saman vísitöluhækkunina og afurðaverðshækkunina. Það er rétt, enda barnabókarlærdómur, og það hef ég ekki gert. Hv. þm. á sæti í mjólkurverðlagsn. Í hvert sinn, sem kaup verkalýðsins breytist, eru færðar fram fullnægjandi skýringar á því, hvers vegna það er nauðsynlegt. En það er ekki gert, þegar mjólkurverðið breytist. Hækkun mjólkurinnar er þó nær sanni en hækkunin á kjötinu. Ég fullyrði, að það nær engri átt, að hækkun tilkostnaðar við kjötframleiðslu hafi neitt nálgazt verðhækkunina. Ég hika ekki við að fullyrða, að með verðlækkun á kjöti mætti tryggja sömu sölu innanlands, og verðbætur fást úr Bretasjóði fyrir það kjöt, sem flutt er til Englands. Ég verð því að halda því fram, að það er fjarri því, að með frv. sé gengið á hlut bænda. Frv. ber einmitt vott um einhliða hagmunastreitu af hálfu fulltrúa bænda og fullkominn skort á skilningi á aðstöðu annarra stétta. Ég skil það, að eins og ástandið er nú, skuli koma fram tilhneiging til að selja afurðirnar sem hæstu verði, en ég ámæli aðallega því, að sömu mennirnir, sem hafa knúið fram þessar hækkanir, skuli gerast til þess að vilja láta lögbanna tekjuaukningu annarra stétta. Það er óverjandi. Þegar þeir eru búnir að hækka afurðaverð bænda um upp undir 130%, þá á að leggja blátt bann við meiru en 70% dýrtíðaruppbót, jafnvel þó að dýrtíðin kynni að aukast. Hér er ójafnt skipt sól og vindi.
Hv. þm. sagði, að í frv. væri ákvæði um að skattleggja stríðsgróðann, og að ekki stæði á sér og sínum mönnum, en þetta er ekki rétt. Frv. um það kom fram síðar, eftir að umr. byrjuðu um þetta mál. Það er vissulega í rétta átt, en kemur ekki þessu frv. við, nema það sé ætlun framsóknarmanna að falla frá þessu frv. og taka hitt upp.
Hv. þm. sagði, að vissir menn vildu tala sem mest, en gera ekkert. Þeir eiga ekki að kasta grjóti, sem búa í glerhúsi, því að fæstir hafa talað meira, en gert minna en einmitt þessi hv. þm. Það þýðir ekki að beina slíku að Alþfl., því að hann hefur gert sínar till.
Ég vil þá víkja að ræðu hæstv. viðskmrh. Hann byrjaði á að fordæma aðferð Alþfl., sem hefði „pantað“ mótmæli gegn frv. og framið trúnaðarbrot, því að hann hefði haft skjal til umráða, sem ekki hefði mátt birta. Ég vil vísa því á bug, því að í 2–3 blöðum Tímans var skýrt frá öllu aðalefni frv., áður en það kom fram á Alþ., svo að allur þorri manna vissi, hvert var aðalefni þess. Ég mótmæli því, að framið hafi verið nokkurt trúnaðarbrot, en að sjálfsögðu var skylt, að félögin fengju að vita sem gleggst um málið, áður en þau tóku afstöðu sína.
Hæstv. ráðh. sagði, að þeir, sem væru á móti frv., væru það af pólitískri hræðslu, og að andstæðingar þess vildu nota tækifærið til að afla sér kjósendafylgis. Ég fæ ekki séð, að það sé neitt ljótt í því, þó að þm. vilji vera í samræmi við óskir kjósenda sinna. Ég tel mér skylt að fylgja fram þeirri stefnu, sem er yfirlýst meginstefna Alþfl. Vitanlega geta komið fyrir þær aðstæður, að þm. flokks greini á, en í öllum meginatriðum eiga þeir auðvitað að fylgja stefnu síns flokks á meðan þeir sitja á þingi. En ummæli hæstv. viðskmrh, bera vott um, að honum finnst, að um leið og landsmenn fá að vita, hvernig frv. er, hljóti þeir að vera á móti því.
Hæstv. ráðh. spurði mig, hvar væri rangsleitnin í garð verkalýðsins, og hvar væri áhætta hans. Það er tvímælalaus réttur verklýðsfélaganna að semja um verkakaupið. Það er yfirlýst af öllum, að svo eigi það að vera, að atvinnurekendur og verkamenn geri sjálfir út um sín deilumál. En í frv. er þetta allt á annan veg. Svo fylgja fögur orð stjórnarinnar og yfirlýstur vilji, en það hefur þekkzt fyrr, að slíkt hefur ekki verið efnt.
Ráðh. spurði, hvernig stæði á því úr því að bændur fengju svona hátt verð fyrir vörur sínar, að fólkið flytti ekki í sveitirnar. En allir vita, að miklir örðugleikar eru á að fá jarðnæði, og ekki gerir það aðgengilegra að fá jarðnæði, að stórgróðamenn kaupa upp jarðir í stórum stíl.
Ráðh. sagði, að ég væri að ala á meting á milli bænda og verkamanna, en sökin á því, hvernig umr. hér hafa orðið, liggur hjá aðstandendum frv.
Ég vil spyrja hæstv. ráðh., hvernig hann mundi líta á það, ef hér væri opinber n., sem ákvæði kaupgjald og verðlag og væri skipuð fulltrúum verkamanna. Nú ákvæði hún, að kaup hér skyldi vera kr. 3.40 á tímann, en kjöt mætti ekki kosta nema kr. 2.40 kílóið. Hvað mundi hæstv. ráðh. svo hafa sagt, ef við þetta hefði bætzt, að sömu menn hefðu lagt lögbann við nokkurri frekari hækkun á kjöti? Ég er ekki í vafa um, að hæstv. viðskmrh. mundi hafa talið það mestu ósanngirni í garð hinna stéttanna, og ég er sammála honum um, að svo hefði verið.
Þá sagði hæstv. ráðh., og það hefur reyndar komið fram undir umr. hjá fleiri hv. þm., að Alþfl. vilji binda verð landbúnaðarafurðanna, en hafa kaupgjaldið óbundið. Ég verð að víkja hér nokkrum orðum að þessari fullyrðingu hæstv. ráðh. um þetta, þótt hún hafi margsinnis komið hér fram. Ég vil þá fyrst taka fram, að Alþfl. hefur ekki borið fram neinar till. um að taka upp bindingu á afurðaverði. Í lögunum um kjöt- og mjólkursölu eru ákvæði, sem leggja það á vald sérstakra nefnda að ákveða verð þessara vara. Þessi löggjöf var sett að ósk bænda sjálfra og þeim til hagsbóta, fyrir tilstilli Alþfl., sem studdi Framsfl. í þessu. Í till. Alþfl, er ekki gert ráð fyrir neinni nýrri bindingu á þessu vöruverði. Þar er aðeins gert ráð fyrir því, að störfum nefndanna sé öðruvísi háttað, en bindingin er sú sama og áður.
Þó að ekki sé á þetta litið, er hverjum manni ljóst, að samanburður á milli kaupgjalds og afurðaverðs í þessu efni er varla gerlegur. Kaupgjaldið er ekki ákveðið af verkalýðsfélögunum einum, heldur er það atriði, sem venjulega er útkljáð með samningum milli atvinnurekenda og þeirra. Það er ekki annar aðilinn, sem segir, að svona eigi þetta að vera. Heldur er um þetta deilt, og venjulega takast um þetta samningar hjá þessum 2 aðilum, sem hvor hefur sinna hagsmuna að gæta. Það er ekkert sambærilegt til hvað snertir verðlag innlendra afurða. Þó segja megi, að til sé félagsskapur framleiðenda, þá eru engin neytendafélög til. Til viðbótar þessu er svo það, að kaupgjald er venjulega bundið ekki skemur en eitt ár, og þeim samningum er ekki hægt að segja upp nema með ákveðnum fresti. Og fyrir fáum árum var sett löggjöf um stéttarfélög og vinnudeilur einmitt til þess að reyna að koma í veg fyrir, að nokkur þjóðarhætta stafaði af þessum deilum. Það er því mesta fásinna að leyfa sér að halda því fram, að sambærilegt sé, hvernig verkakaup er ákveðið, við það sem væri, ef hver bóndi réði, hvað hann seldi sínar vörur fyrir. Ég sagði áðan í minni ræðu, að ég skyldi viðurkenna, að því er snertir einstakar íslenzkar afurðir, að það væri hugsanlegt að fá hærra verð fyrir þær en ákveðið er af þessum nefndum. En ég hygg, að það, sem því veldur, sé, að með afurðasölul. er bændum veitt trygging, sem er þeim ómetanleg. En hver maður skilur, að ef á að nota þá sölumöguleika, sem nú eru, út í yztu æsar á einstöku framleiðsluvörum landbúnaðarins, þá nær engri átt, að samtímis sé bætt upp verð á öðrum afurðum, sem í raun og veru eru lággengisvörur. Það, sem er meiningin með þessu, er, að ef menn telja rétt að nota út í yztu æsar möguleikana á að selja kjöt og smjör fyrir hæsta verð, sem mögulegt er á hverjum tíma, þá geti menn ekki ætlazt til, að aðrar afurðir séu bættar upp af ríkissjóði, heldur verði hágengisvörurnar sjálfar að jafna upp verðið á lággengisvörunum. En einmitt með afurðasölul. er það tryggt, að verðlaginu sé hagað svo, að hægt sé að bæta upp þann hluta afurðanna, sem fluttar eru út og seljast lágu verði. Ef heimtað er hæsta fáanlegt verð innanlands, finnst mér rökrétt afleiðing af því vera sú, að ekki komi til mála að bæta upp útflutningsvörurnar. Þá ætti og að fella niður uppbót á aðrar afurðir bænda en afurðasölul. ná til, og einnig að fella þau úr gildi. Ef menn ætla sér að nota há-„konjunktur“ á einu sviði, verða þeir að geta mætt lág-„konjunktur“ á öðru sviði. En ég vil fullyrða, að ef breyt. verður þar á, yrði það ómetanlegt tjón fyrir bændur. Ég veit það vel, að það má færa ýmsar ástæður fram, sem gera það skiljanlegt. að þessar nefndir hafa ákveðið verðið svona hátt. Fyrst og fremst þær, sem ég vék að áðan, að tilhneiging er hjá fulltrúum bænda í þessum verðlagsnefndum til að miða tekjur bænda, sem þeir vinna sjálfir fyrir, við tekjur gróðastéttanna í landinu. Og þeir segja sem svo : Verkamannastéttin hefur grætt stórfé, — hví mætti bændastéttin ekki græða líka? Þetta er bara of mikil skammsýni, of þröngt sjónarmið. Ég get líka skilið, að það sjónarmið komi hér fram, að brezka setuliðið kaupi hér mikið af afurðum og það sé um að gera að láta þá borga sem hæst fyrir þær. Eins gætu verkamenn líka hugsað.
Í þriðja lagi gerir aukin kaupgeta innanlands það mögulegt að fá hærra verð fyrir afurðirnar hér. En af þessu leiðir, að meginorsök dýrtíðarinnar er sú mikla hækkun á landbúnaðar afurðum umfram það, sem tilkostnaðurinn hefur aukizt.
Ég vil að lokum aðeins benda á eitt atriði í þessu sambandi, og það er það, að ég sé ekki betur, ef þetta frv. yrði samþ. og gert yrði ráð fyrir, að kaup héldi áfram að breytast eftir vísitölunni, en að afleiðingin af því yrði sú, að festa hlutfallið milli afurðaverðs og kaupgjalds, en af því leiddi, að kaupgjaldið yrði hærra en ella. Þegar svo straumurinn snerist við og útflutningsafurðirnar lækkuðu í verði, þá kæmi, af þeim sökum, fyrr að því marki, sem hæstv. atvmrh. gerði grein fyrir í frumræðu sinni, að taprekstur byrjaði hjá atvinnuvegunum við sjóinn. Þá mundu atvinnurekendur verða að draga saman seglin, eða jafnvel stöðva atvinnurekstur sinn, með þeim afleiðingum, að verkamenn yrðu hópum saman atvinnulausir. Það er bersýnilegt, að hátt verð á innanlandsafurðum hlýtur að skapa hærra kaupgjald hjá verkamönnum við sjóinn.
Ég skal að lokum, í sambandi við það, sem hæstv. ráðh. og hv. fyrri þm. Rang. sögðu, geta þess, að þau frv., sem hér hafa komið fram frá Framsfl. undir umr. um þetta mál, — um breyt. á skattal. og stofnun sérstaks dýrtíðarsjóðs —, eru réttilega sett í samband við þetta frv., sem hér liggur fyrir, og í þeim eru ýmis atriði, sem Alþfl. líkar vel. En mest væri þó um það vert, ef Framsfl. vildi fella niður þetta frv., sem nú er til umr., og snúa sér að því að afla tekna eftir þeim leiðum, sem bent er á í frv. okkar, og láta þannig þær stéttir þjóðfélagsins, sem mestan gróða hafa fengið af þessu ástandi, bera kostnaðinn af því, sem nú þarf að gera til að stemma stigu fyrir sívaxandi dýrtíð.