06.11.1941
Neðri deild: 17. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í C-deild Alþingistíðinda. (378)

7. mál, ráðstafanir gegn dýrtíðinni

Finnur Jónsson:

Allmikið af þeim tíma, sem þetta frv. hefur verið rætt hér í hv. d., hefur farið í karp á milli fulltrúa bændanna annars vegar og fulltrúa verkamanna hins vegar um það, hvor þessara stétta hafi borið meira úr býtum. Mér hefur, satt að segja, hálfleiðzt þetta að mörgu leyti, vegna þess að sá stríðsgróði, sem runnið hefur hér inn í landið, hefur hvorki farið til bænda né heldur til verkamanna. Það er að vísu rétt, að afurðir bænda hafa hækkað mikið í verði og að verkamenn hafa bætt nokkuð sinn hag frá því, sem áður var. En þó mun alveg fjarri sanni að tala um stríðsgróða hjá þessum stéttum hvorri fyrir sig. Það, sem hér er um að ræða, er þess vegna ekki það, hvernig stríðsgróðanum er skipt á milli þessara tveggja stétta, heldur, hvor þessara stétta kann að hafa linað nokkuð sína fátækt frá því, sem var fyrir stríð. Þetta hygg ég þó ekki, að eigi að vera neitt ádeiluefni milli bænda og verkamanna. Ég hygg ekki, að bændur geti nokkurn tíma bætt verulega sinn hag með því að halda niðri verkakaupinu. Ég hygg ekki heldur, að verkamenn geti nokkurn tíma bætt verulega sinn hag með því að standa á móti því, að bændur fái sæmilegt verð fyrir sínar afurðir. Deilur á milli bænda og verkamanna í þessum efnum eru til þess eins fallnar, að púkinn á fjósbitanum fitni.

Þetta frv., sem hér liggur fyrir, hefur miðað að því að skerða mjög rétt verkamanna, fyrst og fremst til þess að fá hækkað sitt grunnkaup og í öðru lagi til þess að fá dýrtíðaruppbót samkv. vísitölunni, ef dýrtíðin skyldi halda áfram að vaxa þrátt fyrir ákvæði frv. Auk þess hefur Framsfl. boðað sókn gegn verkamönnum á þann hátt að gera sérstakar ráðstafanir, með samþykki Alþ., um að takmarka tölu þeirra manna, sem vinna í svo nefndri Bretavinnu, í því skyni, að því er virðist, að halda niðri kaupgjaldi á þann hátt. Ef hvort tveggja væri gert í senn, bannað að hækka kaupið, bæði grunnkaupið og dýrtíðaruppbótina, og bannað að vinna Bretavinnu, með það fyrir augum að halda niðri kaupgjaldi í landinu, þá virðist mér, að menn með þessu vildu sýna verkamönnum alveg óverjandi yfirgang, sem ekki með neinu móti verður þolað. Annað mál er það, að það hefur sýnt sig, að það verður nauðsynlegt að takmarka nokkuð tölu þeirra manna, sem eru hér í þjónustu erlendra manna. Og það hefur verið gert með samningum milli herstjórnarinnar og íslenzku ríkisstj., og það alveg án þess hafi verið að hafa nokkur áhrif á kaupgjaldið í landinu. Til þess að tryggja það eftirleiðis, að menn vinni hér nægilega að framleiðslunni, er sjálfsagt að fara þessa leið, sem drepið hefur verið á, að semja á einn eða annan hátt um tölu þeirra íslenzkra manna, sem vinna í Bretavinnu.

Nú hefur metingur á milli bænda og verkamanna gengið svo langt hér í hv. d., að einn af fulltrúum bænda, hv. 1. þm. Rang., talaði um í því sambandi, hve tekjur verkamanna hefðu hækkað gífurlega, að þeir hefðu, auk þess að geta unnið alla venjulega vinnudaga, næturvinnu eins og þeir vildu, og auk þess sunnudaga- og helgidagavinnu og ýmis önnur fríðindi. Það eru orðin á máli þessa hv. þm. „fríðindi“, ef verkamenn, til þess að bæta sinn hag, þurfa að vinna ekki aðeins alla virka daga, heldur líka sunnudagavinnu og helgidagavinnu, vitandi það, að vinnuafl þjóðarinnar, heilbrigði og þroski er undir því komið, að vinnudagurinn þurfi ekki að vera allt of langur, að menn þurfi ekki að leggja saman daga og nætur, virka daga og helgidaga, til þess að framfleyta sér og sínum. Þetta ætti a. m. k. að vera þeim mönnum kunnugt, sem hafa það starf með höndum að boða mönnum kenningar heilagrar ritningar og þar á meðal það, að sjöunda daginn eigi menn að halda heilagan.

Nú hefur það verið svo, að vandræði verkamanna og bænda og þeirra hagsmunamál hafa hingað til, frá því að samvinna tókst á milli Alþfl. og Framsfl., verið leyst með samvinnu þessara stétta, en ekki með fjandskap þeirra. Og mín spá er nú sú, að ef á að leysa þetta mál, þá verði það ekki leyst með fjandskap milli bænda og verkamanna og milli fulltrúa þeirra, heldur með samvinnu fulltrúa þessara stétta hér á Alþ. Það er að vísu svo, að okkur Alþfl.-mönnum hefur bætzt mikill liðstyrkur nú í þessu máli, þegar við viljum halda fram rétti verkamanna; og það er Sjálfstfl., sem er nú kallaður í blaði Sjálfstfl. „stærsti verkalýðsflokkur landsins“. En þó að svo sé, að Sjálfstfl. hafi á síðustu stundu lagzt á móti lagasetningu um kaupgjaldsbindingu varðandi kaup verkamanna, þá uggir mig, að það sé ekki af þeim heilindum gert, að verkamenn megi þaðan vænta mikils liðsinnis. Við vitum það, sem þátt tókum í umr. milli flokkanna um þessi dýrtíðarmál, að fulltrúar Sjálfstfl. í ríkisstj., sérstaklega hæstv. atvmrh., lagði mjög að Alþfl. um það að ganga inn á kaupgjaldsbindinguna. Og það eru ekki nema nokkrar mínútur síðan fulltrúi Sjálfstfl. í fjhn., sá, sem lagði á móti lögbindingu kaupgjaldsins ásamt fulltrúa Alþfl., og á ég þar við hv. þm. A.-Húnv., lét svo um mælt hér í þingræðu, að samhliða hinni frjálsu leið þyrfti að lögfesta gerðardóm til þess að ákveða kaupgjald, ef kaupdeilur kæmu upp, og til þess að banna verkföll. Ég hygg, að þetta sé aðalefni þess, sem hv. þm. A.-Húnv. sagði, og vitna ég þar til annarra hv. þm., sem mál hans heyrðu. Og ef þetta er nú virkilega skoðun hv. þm. A.-Húnv., þá hygg ég, að það sé ekki rangt ályktað, að vandkvæði verkalýðsins verði ekki leyst til lengdar í samvinnu við Sjálfstfl. Ég hygg, að hitt muni öllu réttara, að ef þessi mál verða leyst, þá verði fulltrúar bænda og verkamanna innan Framsfl. og Alþfl. að taka um það nokkuð höndum saman, og hv. þm. verði þá að leggja niður þann ósið að telja, að það séu sérstakir hagsmunir verkamanna að fá að þræla, ekki aðeins allan venjulegan vinnutíma hvern virkan dag, heldur leggja nótt með degi og leggja á sig auk þess helgidagavinnu, en í þess stað reyna heldur að ná verulegum tekjum af stríðsgróðanum, þar sem hann hefur fallið mönnum í skaut.

Það hefur verið bent á það af einum hv. þm., að aukning sú, sem orðið hefur á þjóðarauðnum, muni ekki vera nema að mjög litlu leyti hjá launastéttum þessa lands. Nú er vitanlegt, að launastéttir þessa lands hafa ekki borið allar jafnan hlut frá borði. T. d. hafa embættismenn landsins ekki svo menn viti bætt neitt sinn hag, — eða ég veit ekki til þess. Verkamenn hafa eitthvað bætt sinn hag, ekki með hækkuðu kaupi, heldur af því að dregið hefur úr atvinnuleysinu. En nokkrir launþegar, og þá helzt þeir, sem lagt hafa líf sitt í hættu, eins og sjómenn, hafa borið einna beztan hlut frá borði af launamönnum. En um stríðsgróða er ekki að ræða hjá neinum launþegum landsins. Stríðsgróðinn er allur annars staðar; hann er hjá þeim, sem hafa eitthvað til að selja eða verzla með. Og m. a. er stríðsgróði hjá ýmsum, sem stundað hafa ýmsa fasteignasölu eða sölu skipa o. þ. h. Það hafa ekki enn á þingi komið fram neinar till. um það að reyna að ná í þann virkilega stríðsgróða. En ef svo kynni að fara, að eitthvað rofaði nú til í þessum metingi, sem nú er hér á milli fulltrúa bænda og verkamanna á þingi, þá mætti svo fara, að við færum að litast um eftir því að taka stríðsgróða þar, sem hann er í raun og veru, og reyna á þann hátt að búa okkur undir þau vandræði, sem eru fram undan og mæta okkur fyrr eða síðar. En það er ekki enn neitt það ástand í landinu, sem gerir nauðsynlegt, að gripið sé til neinna örþrifaráða, svipað eins og gert var árið 1939.

En ef við erum hyggnir, þá gerum við ráð fyrir, að slíkt ástand skapist, og búum okkur undir að mæta því.