27.10.1941
Neðri deild: 6. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 147 í B-deild Alþingistíðinda. (38)
Fyrirspurnir um stjórnarframkvæmdir o.fl.
Viðskmrh. (Eysteinn Jónsson) :
Það er rétt, að það á ekki að segja frá því, sem gerist á lokuðum fundi. En ég vil taka undir með hæstv. utanríkisrh., að slíkt sé til viðvörunar, en ekki til eftirbreytni, því að ef gengið væri langt í slíku, yrði það til þess, að þingið gæti ekki starfað á lokuðum fundum. Ég vil því skora á þá, sem hlut eiga að máli, að þeir reyni að koma fram sínum sjónarmiðum á annan hátt og forðist að ganga lengra en bráðnauðsynlegt er til að leiðrétta misskilning.