27.10.1941
Neðri deild: 6. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 147 í B-deild Alþingistíðinda. (39)
Fyrirspurnir um stjórnarframkvæmdir o.fl.
Sveinbjörn Högnason:
Það hefur komið fyrir nokkrum sinnum áður, að borizt hefur út það, sem hefur gerzt á lokuðum fundi, en ekki hygg ég, að áður hafi verið gengið jafnlangt og nú. Mér virðist sjálfsagt, að Alþ. biðji ríkisstjórnina að heimta af blaðinu upplýsingar um, hver sé heimildarmaður þess, ekki sízt þar sem grunur er á, að hann sé einn úr ríkisstj. Það væri alvarlegt mál, ef satt reyndist. Ég tel því tvímælalaust, að Alþ. eigi að fela ríkisstj. að fá skýlausa vitneskju um þetta hjá blaðinu.