28.10.1941
Neðri deild: 7. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í B-deild Alþingistíðinda. (41)

Fyrirspurnir um stjórnarframkvæmdir o.fl.

Utanríkisrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Ég get að vísu ekki svarað fyrirspurn hv. þm. Ísaf. um það, hvað ríkisstj. muni gera út af því, sem komið hefur fyrir, að eitt aðalblað þessa bæjar hefur skýrt frá því, sem gerzt hefur á lokuðum fundi í sameinuðu Alþ., því að ríkisstj. hefur ekki um það rætt sín á milli. En þegar þetta kom hér til umr. í þessari hv. d. utan dagskrár, þá lýsti ég yfir því af minni hálfu, að ég teldi mjög miður farið, vægast sagt, að slíkt hefði komið fyrir. En um leið gat ég þess, að slíkt ætti að vera til aðvörunar, en ekki til eftirbreytni. Nú sé ég, að búið er að útbýta hér í hv. d. á þskj. 12 till. til þál. vegna trúnaðarbrots á Alþ., og er flm. þeirrar till. hv.. 1. þm. Rang. Ég geri ráð fyrir því, að þetta mál komi á dagskrá í sameinuðu Alþ., og þá gefst frekara tækifæri til þess að ræða um málið.

Ég hef ekki heldur leyfi til þess að leysa hv. þm. undan þeim trúnaði, sem hann stendur í um þetta mál, þar sem gefin hefur verið skýrsla á lokuðum fundi sameinaða Alþ., sem ríkisstj. óskar eftir, að ekki verði opinber, þó að misbrestur hafi orðið á því, að allir hv. þm, hafi reynzt trúir um , að halda því máli leyndu. Því að ætla má, að Morgunblaðið hafi fengið fregn sína af fundinum frá einhverjum hv. þm. Hvað gert verður í þessu máli, kemur ekki sízt til kasta Alþ., úr því að þessi þáltill. er fram komin.