07.11.1941
Efri deild: 13. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 150 í B-deild Alþingistíðinda. (46)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
Þorsteinn Þorsteinsson:
Ég vildi aðeins segja örfá orð utan dagskrár.
Svo er mál vaxið, að 6. þingmálið (frv. um breyt. á l. um stimpilgjald) var lagt fyrir þessa hv. d. nú fyrir meira en hálfum mánuði síðan, og var því þá vísað til hv. fjhn. En. hv. fjhn. hefur enn ekki skilað áliti um málið, og veit ég ekki, hvernig á því stendur. Ég sé þó ekki, eftir því, sem fyrir liggur, að hún sé svo störfum hlaðin, að það ætti að tefja fyrir því, að hún afgr. frá sér þetta áminnzta mál, því að ekki hefur komið eitt einasta nál. frá þeirri hv. n. Að vísu er einn nm. þeirrar n. ekki við, en ég geri ráð fyrir, að sá flokkur, sem sá nm. tilheyrir, gæti látið mann í þessa n., sem þyrfti að vera. Óska ég þess, að hæstv. forseti sjái um það, og að n. þessi skili nál. um þetta mál sem allra fyrst, — ef hún sér sér það fært vegna annríkis.