05.11.1941
Efri deild: 12. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í C-deild Alþingistíðinda. (465)

18. mál, útsvör

Páll Zóphóníasson:

Ég skil vel, að hæstv. ríkisstj. skuli leggja þetta frv. hér fram, eftir að skattstjóri hefur beðizt lausnar á þessu starfi, en mér finnst, að allir möguleikar hafi ekki verið athugaðir hér, og vil ég í því sambandi segja, að rök þau, er skattstjóri færir fyrir máli sínu, eru sérstaklega bundin við s. 1. vetur. Af sérstökum ástæðum bar störf niðurjöfnunarn. og skattan. að á sama tíma þá, en venjulega er því ekki þannig varið. Þess vegna á að taka lausnarbeiðni skattstjóra til greina með þetta sjónarmið fyrir augum. Ég get látið í ljós þá skoðun, að ég tel alveg óforsvaranlegt að slíta í sundur tengslin milli niðurjöfnunarn. og skattstofunnar. Milli þessara tveggja stofnana þarf að vera mjög náið samstarf, niðurjöfnunarn. þarf beinlínis að starfa í skattstofunni. Ég ætla ekki að rekja, hvernig það yrði, ef menn, sem ekkert þekkja til þessara mála, færu að jafna niður hér í Reykjavík, en það yrði án efa mjög slæmt. Ég viðurkenni, að vel geti farið svo, að það beri að sama brunni með annríki skattstjórans í vetur eins og í fyrravetur, vegna þeirrar skattalagabreytingar, sem án alls efa verður gerð í vetur, þar sem breyt. í fyrra var aðeins gerð til eins árs. — Þó skattstjóri geti oft gegnt báðum embættunum, þá er það ekki alltaf þannig, en ég vil breyta þessu þannig, að skattstjóri verði áfram formaður niðurjöfnunarn., en að honum verði gefið umboð til að setja 1 fulltrúa sinn fyrir sig á öðrum hvorum staðnum. Nú er ekki gert ráð fyrir í skattal., að skattstjóri hafi fulltrúa, en því mætti bæta í skattal., að auk þess, sem skattstjóri sé skipaður, þá sé um leið skipaður skrifstofustjóri, og skattstjóra sé gefin heimild til þess í útsvarsl. að láta hann mæta fyrir sig eftir þörfum. En að slíta þetta tvennt úr tengslum finnst mér ómögulegt.

Ég vil biðja hv. n. að athuga þetta vel, því að illa getur farið, ef óvanir menn fara að jafna niður útsvörum í Reykjavík án þess að styðjast við þær upplýsingar, sem eru í skattstofunni. Það verður áreiðanlega eitthvað sagt um útsvörin þá.