19.11.1941
Efri deild: 22. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í D-deild Alþingistíðinda. (506)
24. mál, skyldusparnaður
Flm. (Bjarni Snæbjörnsson) :
Það eru fáein orð. Ég þakka þær góðu undirtektir, sem þessi till. hefur fengið. Ég vil fyrst geta þess, að ég bar þessa till. fram frekar í Ed. en Sþ. eingöngu af því, að ég bjóst við, að með því fengi hún frekar afgreiðslu, því að ég gerði ráð fyrir, að eftir að stj. væri komin á laggirnar, yrði þinghaldið stutt. Ég taldi einnig, að ef fullkominn vilji væri fyrir till. í Ed. hjá þm. allra flokka, þá væri það næg áskorun til hæstv. ríkisstj. um að hefjast handa í þessu máli.
Út frá því, sem hæstv. viðskmrh. minntist á að um þetta hefði verið fætt í Framsfl. og hann hefði beitt sér talsvert fyrir þessu máli, þá hef ég ekki haft aðstöðu til að kynna mér það neitt, en er að sjálfsögðu þakklátur hverjum þeim manni, sem vill beita sér fyrir því, en það hefur ekki enn komið neitt fram opinberlega, sem bent hefur til, að neinn flokkur eða einstakir Þm. hefðu hugsað mikið um þetta mál, og ég álít það ekki einungis gott að hreyfa þessu máli nú með það fyrir augum, að hæstv. stj. athugi það og undirbúi löggjöf fyrir næsta þing, heldur jafnframt til að undirbúa þjóðina undir, að þetta verði framkvæmt, því að ég er þess fullviss, að þótt málið hafi eitthvað verið rætt í Framsfl., þá muni fáir hafa hugsað það svo rækilega sem skyldi, og ég ætlast til þess, að um leið og till. koma fram, verði rætt um þessa leið í blöðum og á mannfundum meira en gert hefur verið hingað til, því að það er áreiðanlega rétt, sem ég sagði í framsöguræðu minni, að það má gera þetta mál óvinsælt, en ég er þess líka fullviss, að ef menn íhuga það vel, þá komist þeir að raun um, að þetta er nauðsynjamál og verður að vera vinsælt.
Ég vil líka taka fram, að það er misskilningur hjá hæstv. viðskmrh., ef hann heldur, að það sé mín skoðun, að sleppa eigi öllum sköttum, ef skyldusparnaður verður framkvæmdur. Það kom hvergi fram, og ég ætlaðist auðvitað ekki til þess, heldur sagði ég eins og ég meinti, að það mundi vera hægara að ná meiri peningum úr umferð á þennan hátt en með skattal. einum saman. Auðvitað yrði hægt að koma öllum þessum peningum í lóg, hvað mikið sem ríkissjóður fengi, en slíkur sjóður sem þessi má alls ekki verða eyðslueyrir, eins og líka er minnzt á í grg., að ríkið megi ekki nota hann til neins nema að borga erlendar skuldir. Því ætti ríkissjóði að vera hægur vandi, er hann vildi og áliti, að hann þyrfti ekki á þessu fé að halda, ,að greiða mönnum þetta fé aftur smátt og smátt, eða hvernig sem hann vill haga því, þar sem peningarnir liggja á biðreikningum.
Ég veit það og gat þess líka í framsöguræðu minni, að erfiðleikar væru á að koma þessu máli réttlátlega í framkvæmd, en ég ætlast einmitt til þess, að hæstv. stj. reyni að koma sér saman um heppilegustu leiðina. Stj., sem skipuð er mönnum úr þremur stærstu þingflokkunum, mundi auðvitað ræða málið innan miðstjórna flokkanna og reyna þannig að fá samkomulag allra um það. Ég hygg, að slíkt mál ætti að koma fram frá stj. eða mönnum úr þessum þremur stærstu flokkum, en ekki að einn flokkur fari að reyna að leysa málið, því að það verður til þess að málið dagar uppi, þó að það sé gott í sjálfu sér.