03.11.1941
Sameinað þing: 10. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í D-deild Alþingistíðinda. (528)
9. mál, trúnaðarbrot við Alþingi
Flm. (Sveinbjörn Högnason) :
Hæstv. atvmrh. byrjaði ræðu sína á sama hátt og hann oft gerir: að barma sér yfir því, hve miklar annir hann hafi. Þetta er sjálfsagt rétt hjá hæstv. ráðh., en hann má vita það, að það eru margir þm., sem hafa miklum störfum að gegna, en bera ekki annir fyrir sig í hvert sinn. Og ég get fullvissað hæstv. ráðh. um það, að ég vildi mjög gjarnan verja tíma mínum til annars en deila á slíkar yfirsjónir sem þessa. Það er misskilningur hjá hæstv. ráðh., að hér sé um tómstundaverk eða grín að ræða, og það, að hæstv. ráðh. lætur sér slík orð um munn fara, bendir ótvírætt í þá átt, að það, sem hér hefur gerzt, sé að einhverju leyti honum að kenna.
Ég get ekki skilið, að nokkur þm., sem ekki væri við þetta riðinn, — og þá sízt ráðherra —, muni vilja afsaka það, að þm. gerist brotlegir um uppljóstranir af lokuðum fundum Alþ. Það væri gaman að láta fara fram atkvgr. um það. — Ég skil ekki, hvernig réttarvitund þeirra manna er, sem þannig tala.
Hæstv. ráðh. fór um það nokkrum orðum, að mér mundi ekki ljúft að styðja ríkisstjórn með honum í ráðherrastóli og að skap mitt væri svo mikið eða skapbrestir, að ég ætti erfitt með að sætta mig við það. — Ég vil nú spyrja hæstv. ráðh., hvort skapbrestir mínir hafi verið til mikils trafala fyrir hann í stjórnarsamvinnunni eða hvort ágreiningur hafi risið þeirra vegna. Mér er ókunnugt um það. Hitt er mér ekki grunlaust um, að skapbrestir hans sjálfs eða réttara sagt skapleysi hafi orðið þess valdandi, að ríkisstj. neyddist til að beiðast lausnar.
Það er alveg rétt, að ég hef ekki borið neitt sérlegt traust til hæstv. atvmrh. En það verður stundum að gera fleira en gott þykir til þess að það samkomulag haldist, sem talið er nauðsynlegt vegna þjóðarheildarinnar. Ég held, að hvað stjórnarsamvinnuna snertir sé ekki frekar upp á mig að kvarta en marga af flokksmönnum hæstv. atvmrh.
Þá talaði hæstv. ráðh. um það, að það gæti verið gagnlegt að láta umræður vera leyndar, en birta síðan niðurstöður þeirra. Þetta getur vel verið, en væri þá ekki rétt, að öllum vær í heimilt að birta niðurstöðurnar og það væri ákveðið að gera það. Nú vil ég spyrja: Ef ég greiði atkv. með málinu, en með sérstökum skilyrðum, er mér þá leyfilegt að birta þau skilyrði?
Ég tel mig ekki hafa leyfi til þess, þótt mér finnist forsendur mínar skipta miklu máli og mig langi til þess. Ég hafði ákveðnar forsendur, en nú er hægt að sverta mig bæði af hæstv. atvmrh. og öðrum. (Atvmrh.: Þetta skil ég ekki.) Ég geri ekki heldur þá kröfu til hæstv. ráðh., en meiri hl. Alþ. mun skilja, að þegar birtar eru slíkar niðurstöður opinberlega, þarf einnig að skýra frá því, hvernig slíkar niðurstöður eru til orðnar. Ég mótmæli því eindregið, að það séu sérréttindi eins manns að birta niðurstöður hins lokaða fundar, þegar allir aðrir verða að þegja.
Hæstv. ráðh. sagði, að það væri málinu til góðs eins, að þetta birtist opinberlega. Ég er sannfærður um, að það er því til ills eins. Það var nóg tortryggni fyrir um þennan samning, þótt ekki væri bætt gráu ofan á svart með slíku framferði, sem hér um ræðir. Þetta veit hæstv. ráðh. Ég vil mótmæla í því, að það sé á valdi eins manns að meta það í hvert skipti, hvort það er þjóðinni til góðs að vita, hvað fram fer á lokuðum fundum Alþ. Þar með væri þingleyndin alveg rofin. Það er vitanlegt, að svo er margt sinnið sem skinnið, og eflaust mundi alltaf einhver þm. hafa þá skoðun, að sjálfsagt væri, að þjóðin fengi vitneskju um, hvað fram færi.
Hæstv. ráðh., segir, að öll blöðin hafi vitað, hvað gerðist á fundinum, og það hafi ekki þurft að sækja til hans eða nokkurs þm. vitneskju um það. Þetta er mér alveg óskiljanlegt, því að ekki voru aðrir en þm. á fundinum. Að vísu er sagt, að veggirnir hafi eyru, en ég vona þó, að Morgunblaðið hafi ekki komið sér upp sérstökum hlustunartækjum í veggjum Alþ. Morgunblaðið hlýtur því að hafa vitneskju sína frá einhverjum þm. eða ráðherra.
Þá vildi hæstv. ráðh, telja það ábyrgðarleysi af mér, og hélt víst, að það væri gáleysi, þegar ég sagði, að það mætti fara svo með mál, að það væri óverjandi að styðja það. Ég sagði þetta með fullri vitund og fullri ábyrgð. Og ég finn það bezt á því, hvernig farið hefur með þetta mál, að meðferð þess hefur orðið til þess að koma upp leiðinlegum hugmyndum — að ég kveði ekki fastar að orði — hjá brezku stjórninni, og það er ef til vill hægt að halda þannig á málum, að orðið geti háskalegt fyrir okkar frelsi. Og ég vil heldur engan samning, þótt ég viti, að hann gefi milljónir króna í aðra hönd, ef hann tekur af okkur frelsi til þess að lifa.
Ég segi því að yfirlögðu ráði og með fullri ábyrgð, að það má vel fara svo með þennan samning, að það verði óforsvaranlegt að styðja hann og láta hann vera í gildi.
Hæstv. ráðh. talaði allmikið um sjálfan sig í sambandi við þetta mál, hvað honum hefði komið vel, að hann hefði orðið fyrir óréttmætri gagnrýni, að honum hafi staðið margar leiðir opnar til eigin framdráttar, ef hann hefði óskað. Þetta er sjálfsagt rétt, en fyrir Alþ. skiptir það ekki máli, hvað honum er fyrir beztu, heldur hvað þjóðinni er fyrir beztu. Það er rétt, að hæstv. ráðh. stóð opin leið að halda opinn fund á Alþ. og krefjast atkvgr. um málið, en þá stóð það jafnframt öðrum þm. opið að láta almenning vita, hver var afstaða þeirra og hvers vegna hún var slík. Við þetta var ekkert að athuga. Þetta var þingræðislega rétt og hverjum þm. sæmandi, og hefði enginn kvartað yfir því, þótt það kæmi til vitundar þjóðarinnar. Ég er ekki heldur að kvarta undan því, þótt það kæmist til vitundar þjóðarinnar, en það er hægt að gera það með þeim hætti, að það verði þjóðinni til ills.
Ef allar leiðir hafa staðið opnar til þess að láta þjóðina fá vitneskju um vilja Alþ. í þessu máli, var sjálfsagt að velja heiðarlega leið, en ekki óheiðarlega. Hér var valin óheiðarleg leið, sem allir þm. hljóta að vera mótfallnir. Þetta er það, sem um er að ræða: Á að halda slíkum skollaleik áfram snertandi lokaða fundi Alþingis?
Hæstv. ráðh. beindi þeirri spurningu að lokum til mín, hvers vegna mundi vera átt við sig, þegar talað er um í ástæðum fyrir þáltill., að grunur leiki á, að einn ráðherranna sé við mál þetta riðinn.
Hæstv. ráðh. veit, að þegar talað var um mál þetta hér utan dagskrár, kom það fram í umr., að átt væri við hann. Það er því sannað, að þessi grunur var fyrir hendi, þótt ég hins vegar fullyrði ekkert um, að hann sé réttur. Auk þess kemur hér fleira til greina, því að frétt þessi birtist í blaði, sem er hæstv. ráðh. mjög nákomið. Hæstv. ráðh. hefur ritað í þetta blað um samninginn, og það mundi engum verða til framdráttar öðrum en honum að birta þetta á þennan veg. Persónulega verð ég að segja, að fyrsta varnargreinin, sem birtist í blaðinu 28. okt., ber í mínum augum mjög sterkan keim af rithætti hæstv. atvmrh. Ég sé ekki, að það séu margir, sem skrifa með þvílíku orðbragði, jafnvel þótt hjá Morgunblaðinu sé, og það bendir í vissa átt og vekur grun hjá fleirum en mér, og loks hefur enginn á Alþ. mælt þessu trúnaðarbroti bót nema hæstv. ráðh.