10.11.1941
Sameinað þing: 11. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í D-deild Alþingistíðinda. (544)
9. mál, trúnaðarbrot við Alþingi
Forseti (HG) :
Það hefur komið fram till. um að fresta málinu. En á mælendaskrá eru enn þá nokkrir hv. þm., og mun ég ekki fresta umr. gegn vilja þeirra, en vil grennslast eftir því, hvort þeir vilja ljúka máli sínu nú. —
Ég heyri, að hv. þm. vilja halda umr. áfram, og verður það þá gert, en æskilegt væri, að menn gætu stytt mál sitt.